Jónsson og Le´macks, Ennemm og Fíton hlutu flest verðlaun 24. febrúar 2012 21:47 Vinningshafar.
Auglýsingastofurnar Jónsson og Le´macks, Ennemm og Fíton hlutu flest verðlaun eða þrjá lúðra hver stofa, en í kvöld fór fram hin árlega afhending íslensku auglýsingaverðlaunanna, Lúðurinn. Næstar komu auglýsingastofurnar Hvíta húsið, Íslenska og E&Co með tvenn verðlaun hver. H:N markaðssamkipti og Saga Events hlutu einn lúður hvor. Lúðurinn er veittur í 16 flokkum þar sem auglýsingar sem skara fram úr á árinu 2011 eru verðlaunaðar. Það sem ræður úrslitum er hversu frumleg, snjöll og skapandi hugmyndin er og svo hversu vel hún er útfærð. Fyrir bestu auglýsingaherferðina sem eru jafnframt eftirsóttustu verðlaunin hlaut Ennemm fyrir herferðina „Meira Ísland" sem unnin var fyrir Símann. Í herferðinni var Villi naglbítur á ferð og flugi um landið þar sem hann kom með hnyttnar staðreyndir um helstu staðarhætti. H:N Markaðssamskipti hlaut Áruna, verðlaun sem veitt eru fyrir framúrskarandi árangur auglýsingaherferðarinnar „Gott kaffi fær fólk til að tala" sem var unnið fyrir Innnes. Í herferðinni mátti sjá Erp Eyvindarson og Ragga Bjarna spjalla yfir kaffibolla. Þá hlaut Saga Events lúðurinn fyrir besta viðburðinn, sem var unnið í samstarfi við Fíton, fyrir íslenska skálann „Heiðursgestur" á bókamessunni í Frankfurt en skálinn hlaut mikla athygli í þýskum fjölmiðlum og mikill fjöldi gesta heimsótti skálann. Die Welt sagði að skálinn væri griðarstaður í erli bókasýningarinnar en þar mátti sjá myndbönd af 25 Íslendingum á einkabókasöfnum sínum við lestur uppáhaldsbóka sinna. Þrír lúðrar voru veittir fyrir stafrænar auglýsingar sem er í fyrsta skipti í sögu Lúðursins. Enemm fékk verðlaun fyrir bestu vefauglýsinguna og bestu stafrænu auglýsinguna í samfélagsmiðlum fyrir „Meira Ísland" sem unnið var fyrir Símann. Jónsson og Le´macks hlaut síðasta lúðurinn í stafræna flokknum, hreyfimyndir fyrir ,,Moogies" fyrir fyrirtækið Plain Vanilla. Fíton átti bestu auglýsinguna í flokknum almannaheillaauglýsingar fyrir aðra miðla. Auglýsingin var gerð fyrir VR en yfirskrift hennar var „2500 borðar sem tákn um atvinnulausa VR félaga" en borðarnir voru hengdir upp á Kringlumýrabrautinni og vöktu mikla athygli vegfarenda. Að auki hlaut Hvíta húsið verðlaun í flokknum almannaheillaauglýsingar ljósvakamiðlar fyrir auglýsinguna „Angels" sem unnin var fyrir Umferðastofu. Tilgangur auglýsingarinnar var að opna augu ökumanna fyrir alvarlegum afleiðingum hraðaksturs. Fyrir besta markpóstinn hlaut E&Co fyrir fallegt tímarit sem unnið var fyrir verslunina Geysi sem kom inn um lúguna hjá höfuðborgarbúum. Í flokknum ásýnd fyrirtækis eða vörumerkis bar Jónsson & Le´macks sigur úr býtum með ásýnd Kex hostel sem opnaði síðastliðið sumar. En það voru ekki einu verðlaun Jónsson & Le´macks en þeir fengu einnig verðlaun í flokki útvarpsauglýsinga fyrir auglýsinguna „Mamma er æst" sem unnin var fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands. Íslenska auglýsingastofan hlaut tvenn verðlaun þetta árið. Það var fyrir kvikmynduðu auglýsinguna „Gefðu frí um jólin" fyrir Icelandair en auglýsingin var mikið handverk þar sem brúður léku hlutverk. Einnig vann auglýsingastofan verðlaun í flokknum veggspjöld og skilti fyrir "Við þekkjum tilfinninguna-Uglan" sem unnið var fyrir Cintamani. Í flokknum prentauglýsingar hlaut Hvíta húsið lúður fyrir „Rjómantík" sem unnið var fyrir Mjólkursamsöluna en þar er skrifað með rjóma á skemmtilegan hátt. Fíton hlaut verðlaun í flokknum umhverfisauglýsingar fyrir „Stoppustuð Orkusölunnar-Upphituð ljósasýning". Biðskýlið Stoppustuð fór ekki framhjá þeim sem óku Hringbrautina en blikkandi ljós blöstu við ökumönnum. Auglýsingaherferðin sem E&Co vann fyrir verslunina Geysi bar sigur úr býtum í vefkosningunni Val fólksins sem fór fram á mbl.is. Þar gátu landsmenn tekið þátt í valinu á bestu auglýsingaherferðinni og er þetta í hugum margra ein mikilvægustu verðlaunin.Hér má skoða hvaða auglýsingar voru tilnefndar og hverjar hlutu lúðurinn í hverjum flokki fyrir sig.
Ímark Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Starmer segir af sér Erlent Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Innlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra Innlent Hrafni bjargað af þaki Byko Innlent Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Innlent Fleiri fréttir Segir upphaf hvalvertíðar vera gleðitíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“ Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Helmingur óánægður hefði Hildur valið Miðflokkinn Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig 86 prósent horfðu ekki á úrslit Eurovision Ráðherra vill varamótor Herjólfs tiltækan hérlendis Pólitískur ólgusjór í Bretlandi, hvalveiðar og banvæn hitabylgja „Best að taka menn og sekta duglega“ Briddsarar í toppformi leggjast í víking til Ríga Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Slagsmál tveggja í Kópavogi enduðu á slysadeild Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Aldrei fleiri fengið úthlutaða skólavist Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka BSO-stöðin komin á nýtt heimili Hrafni bjargað af þaki Byko Hlutu Vigdísarverðlaunin fyrir baráttu fyrir jöfnu aðgengi að þungunarrofi Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Fyrstu hvalirnir skotnir og Starmer segir af sér Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Reiðhjólauppboð lögreglu hefst í dag Fundu kannabisplöntur í húsi á Suðurnesjum Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Loka Sæbraut til austurs við Hörpu í kvöld Jarðskjálfti að stærð 3,1 í nótt Sjá meira