Sport

Þórey Edda: Einstakur árangur hjá Ásdísi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Þórey Edda fagnar með Ásdísi í morgun.
Þórey Edda fagnar með Ásdísi í morgun. Mynd/Valli
Þórey Edda Elísdóttir, flokksstjóri íslenska frjálsíþróttahópsins hér í London, var himinlifandi með árangur Ásdísar Hjálmsdóttur í spjótkasti í morgun.

Ásdís tryggði sér sæti í úrslitum með því að kasta 62,77 m strax í fyrstu tilraun. Fleiri köst þurfti ekki til þar sem 62 m dugðu til að komast í úrslit.

Bætti hún þar með Íslandsmet sitt í greininni um 1,4 m sem er glæsilegur árangur.

„Þetta er bara ótrúlega gott hjá henni. Ég bjóst ekki við öðru af henni en það er engu að síður einstakt að hafa náð að segja landsmet strax í fyrsta kasti," sagði Þórey Edda við Vísi í morgun.

„Ég held að þetta hafi ekki gerst oft í okkar íþróttasögu. Hún Ásdís á þetta svo innilega skilið og þetta er bara yndislegt."

Þórey segir greinilegt að Ásdís sé í besta formi lífs síns. „Það er greinilegt. Hún er búin að gera allt rétt og uppsker nú samkvæmt því."

Úrslitin fara fram á fimmtudagskvöldið. „Það verður bara að koma í ljós hvernig gengur. Fyrir það fyrsta er mikið spennufall sem kemur eftir að hafa komist í úrslit og nú þarf hún að vinna úr því."

Þórey Edda var ein fremsta frjálsíþróttakona landsins um árabil og keppti á Ólympíuleikunum í Aþenu árið 2004. Hafnaði hún í 5. sæti í stangarstökki kvenna.


Tengdar fréttir

Ásdís: Draumurinn orðinn að veruleika

Ásdís Hjálmsdóttir átti erfitt með að lýsa ánægju sinni með árangurinn sinn í undankeppni spjótkasts kvenna á Ólympíuleikunum í morgun.

Ásdís þurfti bara eitt kast | Myndir

Valgarður Gíslason, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, fékk ekki mörg tækifæri til að mynda Ásdísi Hjálmsdóttur í keppni á Ólympíuleikunum í morgun.

Ásdís áfram á glæsilegu Íslandsmeti

Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni hefur tryggt sér sæti í úrslitum spjótkastskeppni kvenna með glæsilegu Íslandsmeti, 62,77 m. Bætti hún metið sitt um rúman metra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×