Sport

Ásdís: Draumurinn orðinn að veruleika

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Ásdís fagnar kastinu sínu í morgun.
Ásdís fagnar kastinu sínu í morgun. Mynd/Valli
Ásdís Hjálmsdóttir átti erfitt með að lýsa ánægju sinni með árangurinn sinn í undankeppni spjótkasts kvenna á Ólympíuleikunum í morgun.

Ásdís tryggði sér sæti í úrslitum með því að kasta 62,77 m en lágmarkið til að komast í úrslit var 62 metrar. Ásdís hafnaði í áttunda sæti í undankeppninni en tólf efstu komust áfram.

„Ég sá bara að þetta var yfir línuna. Ég sá að þetta var yfir 62 metrum. Það var það eina sem skipti máli," sagði Ásdís við Vísi eftir kastið sitt.

Þetta var hennar fyrsta tilraun í keppninni og þurfti hún því ekki að taka fleiri köst. Nú bíða úrslitin hennar en þau fara fram á fimmtudagskvöldið.

„Draumurinn er orðinn að veruleika. Ég komst í úrslit á Ólympíuleikum en ég er hvergi nærri södd. Ég er ekki búin. Nú þarf ég að ná mér niður á jörðina, hitta fjölskylduna og njóta tímans fram að úrslitunum."

Hún segir að árangurinn komi sér ekki á óvart. „Ég átti alveg eins von á því að fara áfram. Ef ég hefði ekki átt von á því hefði ég ekki haft trú á mér. Ég hafði fulla trú á mér og þess vegna náði ég þessu kasti."

Hún ákvað að nálgast fyrstu tilraun sína af yfirvegun. „Ég ákvað að vera afslöppuð í fyrsta kastinu og sjá hvað það myndi gefa mér. Þannig kasta ég lengst og það var einmitt það sem ég gerði þegar ég kastaði yfir 60 metrana á MÍ heima."

„Ég veit ekki hvað ég get sagt meira - þetta var frábært."


Tengdar fréttir

Ásdís áfram á glæsilegu Íslandsmeti

Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni hefur tryggt sér sæti í úrslitum spjótkastskeppni kvenna með glæsilegu Íslandsmeti, 62,77 m. Bætti hún metið sitt um rúman metra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×