Ásdís áfram á glæsilegu Íslandsmeti Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. ágúst 2012 09:59 Mynd/Valli
Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni hefur tryggt sér sæti í úrslitum spjótkastskeppni kvenna með glæsilegu Íslandsmeti, 62,77 m. Bætti hún metið sitt um rúman metra. Kasta þurfti 62 metra til að komast áfram í úrslit og þurfti Ásdís aðeins eitt kast til að ná þeirri vegalengd. Fagnaði hún árangrinum vel og innilega enda stórglæsilegur. Úrslitin sjálf fara fram á fimmtudagskvöldið og verður Ásdís þar í hópi bestu spjótkastara heims. Ásdís hafnaði í áttunda sæti undankeppninnar í morgun. Viðtal við Ásdísi má lesa með því að smella hér en fyrir neðan má sjá beina lýsingu frá keppni morgunsins.10.48: Glæsilegt kast!!! Þvílíkt og annað eins!!! 62,77 m - nýtt Íslandsmet og Ásdís er komin áfram! Hún fagnar gríðarlega enda gjörsamlega frábær árangur!10.47: Þá er okkar kona mætt út á brautina og er að gera sig klára.10.42: Evrópumeistarinn Vira Rebryk frá Úkraínu var að kasta og var nálægt 62 m línunni. Hún var ekki ánægð með að komast ekki yfir og gerði ógilt með því að stíga yfir.10.41: Sunette Viljoen frá Suður-Afríku fór létt með að komast áfram. Hún kastaði langt fyrir aftan línuna og þrykkti spjótinu 65,92 m. Hún þarf því ekki að kasta aftur. Viljoen varð þriðja á HM í Daegu í fyrra.10.38: Það er byrjað að keppa í kasthópi Ásdísar. Fyrstu köstin eru stutt og ekki líkleg til árangurs hér.10.36: Ásdís kastaði 60,54 metra á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum í síðasta mánuði og sagði þá að það kast myndi duga til að komast í úrslit á Ólympíuleikum.10.32: Heimsmetið í spjótkasti kvenna er 72,28 m og var sett í Þýskalandi árið 2008. Ólympíumetið er 71,53 m en Olisdeilys Menendez frá Kúbu setti það í Aþenu fyrir átta árum síðan.10.31: Heimsmeistarinn frá því í Daegu í fyrra, Mariya Abakumova frá Rússlandi, er í kasthópi B með Ásdísi. Sigurkast hennar í yrra var 71,99 en Spotakova varð önnur með 71,58 m.10.29: Ólympíumeistarinn og heimsmethafinn Barbora Spotakova frá Tékklandi fór auðveldlega áfram í úrslitin. Hún kastaði 66,19 strax í fyrsta kasti og sagði það bara gott. Enda besta kastið í hópi A og yfir 62 metrum.10.26: Hver kastari fær þrjár tilraunir en alls er 21 keppandi í kasthópi B - jafnmargir og í A-hópnum. Ásdís er fimmtánda í kaströðinni.10.23: Ásdís náði frábærum árangri á stórmótum ungmenna á sínum tíma. Hún varð fjórða á EM U-23 árið 2003 og sjötta á HM ungmenna árið áður. Ásdís verður 27 ára í október næstkomandi.10.22: Ásdís var hársbreidd frá því að komast í úrslit á HM í fyrra en þá varð hún þrettánda í undanrásum með 59,15 m. Hún var hálfum metra frá tólfta sætinu og þar með sæti í úrslitunum.10.20: Ásdís hefur einu sinni áður komist í úrslit á stórmóti. Það var á EM 2010 en þá komst hún síðust inn með kasti upp á 56,55 m.10.19: Í viðtali sem birtist í Fréttablaðinu í morgun segist Ásdís vera eins vel undirbúin og mögulegt er. Smelltu hér til að lesa það.10.17: Þess má geta að á Ólympíuleikunum í Peking fyrir fjórum árum síðan þurfti 60,13 m til að komast í úrslit. Ásdís tók þátt en meiddist stuttu fyrir leikana og var langt frá sínu besta.10.14: Kasti Ásdís lengra en 60,62 m er líklegt að hún komist áfram - ekki nema að keppendum í kasthópi B gangi þeim mun betur en A-hópnum. Íslandsmet hennar í greininni 61,37 m og var sett fyrir þremur árum síðan.10.12: En aftur að spjótkastinu. Kasthópur A hefur lokið sér af og fjórir úr honum komust sjálfkrafa áfram með því að kasta lengra en 62 metra. Næstu tvö köst á eftir voru 60,62 m og 60,25 m.10.09: Rétt áðan fóru fram undanrásir í 110 m grindahlaupi karla. Það var mikil dramatík í síðasta riðlinum þar sem heimsmethafinn Liu Xiang frá Kína var að keppa. Ekki var von á öðru en að hann myndi fara auðveldlega áfram en hann féll strax á fyrstu hindrun. Hann valhoppaði brautina á enda þar sem félagar hans tóku við honum og hjálpuðu honum út af. Xiang vann gull á leikunum í Aþenu fyrir átta árum síðan en meiddist skömmu fyrir leikana í Peking. Hann er ein stærsta íþróttastjarna Kína og vonbrigðin því gríðarleg í heimalandinu. Því þori ég að lofa.10.06: Það er verið að keppa í fleiri greinum, vitanlega. Undanrásir í 200 m hlaupi hefjast klukkan 10.50 og strax í fyrsta riðli verður enginn annar en Usain Bolt í eldlínunni. Landi hans frá Jamaíku, Yohan Blake, er í fjórða riðli.10.03: Allir þeir sem kasta yfir 62 metra komast sjálfkrafa í úrslit. Ef færri en tólf ná þeirri vegalengd munu þeir tólf bestu í undanrásunum komast áfram í úrslitin.10.00: Velkomin til leiks hér á Ólympíuleikvanginum. Hér ætlum við að fylgjast með Ásdísi Hjálmsdóttur í undakeppni spjótkasts kvenna. Ásdís er í kasthópi B sem hefur leik klukkan 10.25.
Mest lesið Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag Fótbolti Fótboltastrákur lést eftir hnéaðgerð Fótbolti „Ef það verður ekki ég þá verður það bara einhver önnur“ Sport Var uppi í áhorfendastúku þegar nafn hans var kallað upp í nýliðavali NBA Körfubolti Barnsmóðir NBA stjörnu hótaði að láta skera af honum puttana Sport Færeyingar í undanúrslitin á HM og gætu mætt Dönum í úrslitaleiknum Handbolti „Ég sé Messi ekki missa af HM 2026“ Fótbolti Nýr liðsfélagi Íslendinganna hjá HamKam æfði undir fölsku nafni Fótbolti Dagskráin: Besta deildin, formúla, golf og pílukast Sport Gæti orðið dýrastur í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barnsmóðir NBA stjörnu hótaði að láta skera af honum puttana Fótboltastrákur lést eftir hnéaðgerð Dagskráin: Besta deildin, formúla, golf og pílukast Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag „Ég sé Messi ekki missa af HM 2026“ „Ef það verður ekki ég þá verður það bara einhver önnur“ Var uppi í áhorfendastúku þegar nafn hans var kallað upp í nýliðavali NBA Nýr liðsfélagi Íslendinganna hjá HamKam æfði undir fölsku nafni Njarðvíkingar með montréttinn í Reykjanesbæ og toppsæti deildarinnar City vann riðilinn og sleppur líklega við Real Madrid Færeyingar í undanúrslitin á HM og gætu mætt Dönum í úrslitaleiknum Elísabet stýrði Belgum til sigurs í generalprufunni fyrir EM Markadrottning afgreiddi mótherja Íslands í síðasta leik fyrir EM „Við vorum að rústa Íslandsmetinu“ Mbappé aftur með PSG í réttarsalinn og nú vegna eineltis Norsk handboltastjarna með krabbamein Sigur og tap í generalprufum mótherja Íslands fyrir EM í Sviss Vrkić í Hauka Snorri Dagur aðeins fimm sekúndubrotum frá verðlaunasæti á EM Kraftaverkakona sem þekkir Ísland út og inn Snorri Dagur í úrslit á EM Rauð hitaviðvörun hjá stelpunum okkar í Serbíu Bulls veðja á fyrrum lærisvein Baldurs Ronaldo semur um að spila til 42 ára aldurs Spila um Forsetabikarinn á HM Fyrirliði Brentford að ganga til liðs við Arsenal Gæti orðið dýrastur í sögu KR Stjarnan staðfestir komu Caulker Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Sjá meira