Sport

Ásdís þurfti bara eitt kast | Myndir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Valgarður Gíslason, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, fékk ekki mörg tækifæri til að mynda Ásdísi Hjálmsdóttur í keppni á Ólympíuleikunum í morgun.

Ásdís þurfti nefnilega bara eitt kast til að koma sér áfram í úrslitin í spjótkasti kvenna sem fara fram á fimmtudagskvöldið.

Hún kastaði spjótinu 62,77 metra sem er glæsilegt nýtt Íslandsmet. Það var áttunda besta kast morgunsins en tólf efstu fóru áfram í úrslitin.

Henni var vel fagnað á Ólympíuleikvanginum þar sem 80 þúsund manns voru að fylgjast með keppnum morgunsins. Hljóp hún fyrst til þjálfara síns, Stefáns Jóhannssonar, sem var vitanlega í skýjunum með skjólstæðing sinn.

Smelltu á hlekkinn hér fyrir neðan til að sjá myndirnar.

Mynd/Valli

Tengdar fréttir

Ásdís: Draumurinn orðinn að veruleika

Ásdís Hjálmsdóttir átti erfitt með að lýsa ánægju sinni með árangurinn sinn í undankeppni spjótkasts kvenna á Ólympíuleikunum í morgun.

Ásdís áfram á glæsilegu Íslandsmeti

Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni hefur tryggt sér sæti í úrslitum spjótkastskeppni kvenna með glæsilegu Íslandsmeti, 62,77 m. Bætti hún metið sitt um rúman metra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×