Fyndið að vera í fýlu alfrun@frettabladid.is skrifar 18. desember 2012 08:00 Reynir að kæta Hér sést Leroy reyna að kæta vin sinn með risastórri partýpitsu en þema myndbandsins við lag Hjaltalín Myself er fýla. Magnús Leifsson leikstýrir. „
Það er eitthvað svo fyndið að vera í fýlu í skrýtnum aðstæðum,“ segir leikstjórinn Magnús Leifsson sem á heiðurinn af nýju myndbandi hljómsveitarinnar Hjaltalín við lagið Myself. Lagið er af plötunni Enter 4 og verður frumsýnt á morgun. Í myndbandinu leika tveir ungir strákar, þeir Ólafur Ásgeirsson og Leroy Ciaprianne, vini þar sem annar er í mikilli fýlu og hinn leggur sig allan fram við að hressa hann við. Myndbandið á að lýsa hversu hallærislegt það getur verið að vera í fýlu í einkennilegum aðstæðum og byrjar á vandræðalegu faðmlagi milli vinanna. „Við erum að reyna að fanga óþægilega stemmingu eins og þegar maður faðmar einhvern sem hefur engan áhuga. Svo grófum við upp gamla hluti á borð við SPK-bol og risa partýpitsu frá Pizza 67,“ segir Magnús, en myndbandið var tekið upp á heimili foreldra hans. Myndbandið sjálft var tekið upp á einum degi í byrjun desember og vinnslan tók um tvær vikur. „Þetta tók mjög stuttan tíma, svona í anda plötunnar sjálfrar sem kom út upp úr þurru í síðasta mánuði. Við vorum bara lítið tökulið sem djöflaðist í heilan dag og ég er sáttur við útkomuna.“ Ólafur er leiklistarnemi í Listaháskóla Íslands en leikstjórinn uppgötvaði Leroy á skemmtistaðnum Prikinu þar sem hann vinnur. „Mér fannst hann smellpassa í hlutverkið. Hann hefur skemmtilega útgeislun og einkennilegar hreyfingar.“ Magnús hefur verið iðinn í myndbandagerð undanfarið en hann leikstýrði einnig myndbandinu við lagið Glow með Retro Stefson sem hefur vakið athygli. Hann er einn af aðstandendum gamanþáttanna Steindi jr. sem runnu sitt skeið á dögunum. „Þetta var síðasta Steinda-serían en við erum allir eitthvað að plotta saman sem of snemmt er að tala um núna.“ Eins og fyrr segir verður myndbandið frumsýnt á morgun á vefsíðunni Berglind Festival.
Mest lesið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Lífið Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Menning Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Lífið samstarf Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Lífið Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Hlaupaslagur ársins í beinu StuðStreymi frá Dyrfjöllum Lífið samstarf Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Lífið Fleiri fréttir Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Sjá meira