Lífið

Syngur texta pabba til mömmu

Júlíus Guðmundsson sendir frá sér plötuna Gálan. Fréttablaðið/anton
Júlíus Guðmundsson sendir frá sér plötuna Gálan. Fréttablaðið/anton
„Það má segja að þetta séu ástarljóð frá pabba til mömmu,“ segir Júlíus Guðmundsson, sem sendi frá sér plötuna Gálan á miðvikudag. Flest lög plötunnar eru við texta föður hans, tónlistarmannsins Rúnars Júlíussonar. Júlíus fann textana á tölvu Rúnars, sem lést árið 2008, og ákvað að búa til plötu.

Sumir textarnir voru tilbúnir en aðrir voru bara ein setning sem Júlíus gerði að lagatexta. Textarnir eru flestir ortir til móður Júlíusar, Maríu Baldursdóttur, og samdir af Rúnari árið sem hann lést. „Þá var hann greinilega kominn í ákveðinn gír og líklega farinn að finna á sér hvað væri í vændum. Pabbi var ekki mikið fyrir að vera persónulegur í textagerð sinni en margir textanna eru um hvernig mamma eigi að pluma sig þegar hann er farinn,“ segir Júlíus og bætir við að þeir feðgarnir hafi alltaf ætlað að gera plötu saman áður en Rúnar féll frá.

Sjálfur er Júlíus allt í öllu á plötunni Gálan. Hann stjórnar útsetningum, tekur myndina á plötuumslaginu og spilar á næstum öll hljóðfærin. „Það er hægt að kalla þetta sjálfsþurftarbúskap. Ég játaði mig samt sigraðan þegar kom að fiðlunni, þar fékk ég Roland Hartwell til að aðstoða mig.“

Ekki er hægt annað en að spyrja Júlíus út í nafn plötunnar, Gálan. „Það er nú ekki flókin saga. Þetta nafn hefur fylgt mér lengi en ég er í tríóinu Gálan, götuleikarinn og guð. Þar er ég gálan.“- áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.