Góður boðskapur tæklaður TRS skrifar 27. nóvember 2012 08:00 hafdís og klemmi lenda í alls konar ævintýrum í þáttunum. mynd/skálholtsútgáfan „
Þetta er alíslenskt barnaefni þar sem boðskapurinn um að vera góður við aðra er tæklaður á hressilegan og gleðilegan hátt,“ segir Þorleifur Einarsson, leikstjóri barnaefnisins Daginn í dag. Daginn í dag 2 kom út á DVD á dögunum og samanstendur af þremur 33 mínútna löngum þáttum. Fyrri diskurinn kom út í lok árs 2010 og hefur notið vinsælda hjá yngri kynslóðinni. „Eftirspurnin varð svo mikil eftir fyrsta diskinn að við gátum ekki annað en búið til aðra þáttaröð,“ segir Þorleifur en tökur stóðu yfir í sumar og var þriðja serían þá tekin upp í leiðinni. Töluverðar breytingar hafa orðið frá fyrstu þáttaröðinni. „Við erum orðin töluvert sjóaðri núna,“ segir Þorleifur hlæjandi og bætir við að þættirnir séu fullir af alls kyns ævintýrum, söngvum og sögum og tæknibrellurnar betri en þekkist í íslensku barnaefni. „Þarna er líka hópur barna sem syngur sunnudagaskólalög og skemmtilegar brúður sem kíkja í heimsókn. Það er aldrei dauður tími í Daginn í dag,“ segir Þorleifur. Hlutverk Hafdísar og Klemma eru sem fyrr í höndum Hafdísar Mariu Matsdóttur og Jóels Sæmundssonar. Mæja og Haffi, leikin af Ingunni Huld Sævarsdóttur og Lárusi Páli Birgissyni, eru þeim innan handar auk þess sem Tinna táknálfur hefur bæst í hópinn. „Hún syngur sálmana sem eru í lok hvers þáttar á táknmáli en krakkarnir túlka hin lögin með tákn með tali hreyfingum, alveg eins og í fyrri seríunni,“ segir Þorleifur.
Mest lesið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið Fleiri fréttir Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Sjá meira