Álagsprófa þarf nýju stjórnarskrárdrögin 17. nóvember 2012 06:00 Páll Þórhallsson, talsmaður sérfræðingahóps sem fór yfir drög að stjórnarskrá, var málshefjandi á þingi um næstu skref í HR í gær. Fréttablaðið/GVA
Máta þarf við drög að nýrri stjórnarskrá hver yrðu afdrif mála í nýju umhverfi hennar. Á málþingi sem deildir laga, stjórnsýslu og stjórnmála í öllum háskólum landsins stóðu fyrir í gær kom fram að framkvæma þyrfti „álagspróf“ á stjórnarskrárdrögunum sem leiddu í ljós afleiðingar einstakra ákvæða og verkferla sem drögin gera ráð fyrir, auk þess sem Alþingi þyrfti að taka á pólitískum álitamálum. Á fundinum, sem fór fram í Háskólanum í Reykjavík, var rakin vinna, niðurstöður og ábendingar sérfræðingahópsins, sem skilaði niðurstöðum sínum í byrjun vikunnar, og rædd næstu skref. Fram kom í máli Kristrúnar Heimisdóttur, lektors við Háskólann á Akureyri, að hún teldi tillögurnar vega að þingræðinu. „Verið er að blanda saman svissnesku beinu lýðræði við einhvers konar bandarískt forsetaræði, að viðbættu einhverju þingræði að þýskri eða sænskri fyrirmynd, sem ég tel ekki vera þingræði,“ sagði hún og lýsti því hvernig hún hefði í vikunni lagt fyrir nemendur að finna út hvað gerðist ef fram kæmi frumvarp frá 10 prósentum kosningabærra manna um upptöku Kanadadollars sem lögeyris hér, líkt og drögin heimiluðu. Sagði hún vanta allar ráðleggingar um hvernig haga ætti þinglegri meðferð málsins og gagnrýni um leið á ákvæði um að Alþingi skyldi leggja fram frumvarp til málamiðlunar, yrði hinu hafnað. „Alþingi er þverskurður þjóðarinnar og gæti aldrei komið fram sem heild um átakamál.“ Niðurstaðan hafi verið að engin af stærri álitamálum almennrar þjóðmálaumræðu síðustu missera gætu á grunni stjórnarskrárdraganna ratað í gegnum íslenskt stjórnkerfi. „Þetta yrðu endaleysur og óskiljanlegir völundarhúsagangar sem tækju við ef þetta nýja kerfi yrði að veruleika.“ Álagsprófa þyrfti kerfið líkt og stjórnlaganefnd hefði raunar farið fram á við Alþingi, án þess að því hefði verið komið í verk. Undir þetta tók Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, sem um leið kvað nauðsynlegt að alþingismenn tækju á pólitískum álitamálum í drögunum. „Við hljótum öll að vilja átta okkur á hvað þessar breytingar hafa í för með sér áður en við keyrum þær í gegn,“ sagði hún og fagnaði því um leið að ákveðið hefði verið að leita umsagnar Feneyjanefndarinnar svokölluðu á frumvarpsdrögunum. Frumvarpið var afgreitt úr nefnd á fimmtudag og verður tekið til umræðu á Alþingi næsta þriðjudag. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Önnur lægð nálgast landið Veður Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Erlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Fleiri fréttir Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Sjá meira