Safna aðdáendum Instagram saman á Kex 15. nóvember 2012 00:00 Cole Rise heldur svokallað Instagram Meetup á Kex Hostel á sunnudaginn. Fréttablaðið/gva "
Okkur finnst mjög gaman að hann hafi valið okkur sem vettvang fyrir þennan viðburð enda er Rise virtur innan Instagram-samfélagsins," segir Guðmundur Magnússon, móttökustjóri Kex Hostel, en ljósmyndarinn og hönnuður Instagram-lógósins, Cole Rise, hefur boðað til svokallaðs Instagram Meetup á Kex Hostel á sunnudaginn. Instagram Meetup er þekkt fyrirbæri úti í heimi, en þetta er í fyrsta sinn sem viðburður á borð við þennan fer fram hér á landi. Um er að ræða vettvang þar sem aðdáendur og áhugafólk um samfélagsmiðilinn hittast, bera saman bækur sínar og fá óformlega fræðslu um Instagram. "Þetta er mjög þekkt úti í heimi. Þetta er ekki fundur þar sem Rise heldur fyrirlestur, heldur frekar hittingur þar sem notendur Instagram geta hist og deilt áhugamáli sínu með fleirum," segir Guðmundur. Instagram Meetups hafa verið haldnir í yfir 1300 borgum út um allan heim. Rise hannaði Instagram-lógóið, sem er orðið þekkt vörumerki, ásamt því að hanna nokkrar af litsíunum (e. filter) sem eru í boði fyrir notendur miðilsins. Rise sérhæfir sig í að taka myndir á símann sinn og getur því miðlað af visku sinni varðandi myndatökur, litsíur og annað sem tengist Instagram. Guðmundur segir hittinginn vera fyrir alla þá sem hafa áhuga á miðlinum, en hann ætlar sjálfur ekki að láta sig vanta. "Hér á Kex höfum við mjög góða reynslu af þessum miðli, en við notum Instagram mjög mikið til að koma okkar skilaboðum áleiðis. Það var einmitt í gegnum Instagram sem Rise frétti af okkur. Það er því um að gera fyrir fyrirtæki jafnt sem einstaklinga að mæta og fá fræðslu um hvaða möguleikar eru í boði innan Instagram." Fundurinn hefst klukkan 17 á sunnudaginn en hægt er að fræðast um Instagram Meetups á vefsíðunni Meetup.com/instagram. Einnig er hægt skoða símamyndir Rise á vefsíðunni Life.colerise.com. Um InstagramCole Rise hannaði merki Instagram.Instagram er ljósmyndaþjónusta og samfélagsmiðill sem var stofnaður í október 2010. Gengur út á að taka myndir, einna helst á síma, setja einhverskonar filter á hana og deila með fylgjendum sínum á forritinu. Einnig er hægt að deila myndinni á öðrum samfélagsmiðlum á borð við Facebook og Twitter. Skráðir notendur eru 100 milljónir. Fyrst stofnað fyrir iPhone, iPad og iPod Touch. Frá því í apríl 2012 hefur þjónustan verið í boði fyrir eigendur Android síma. Býður upp á 14 mismunandi litsíur (e.filter) fyrir myndir. Tölfræði tekin saman í maí 2012: 58 myndir hlaðast inn á miðilinn á hverri sekúndu. Á hverri sekúndu bætist nýr notandi við. Meira en ein billjón myndir eru inni á Instagram- miðlinum. Facebook keypti Instagram fyrr á þessu ári fyrir um 1 billjón bandaríkjadala í peningum og hlutbréfum. Nýlega var gerð sú breyting að hver notandi Instagram er nú með sína eigin síðu á netinu þar sem hægt er að nálgast allar myndir hans.
Tengdar fréttir Instagram kynnir notendasíður Instagram, forrit sem upphaflega var búið til svo að fólk gæti deilt ljósmyndum úr farsímum á samfélagsmiðlum, hefur nú fengið sitt eigið vefviðmót sem þykir um margt minna á notendasíður Facebook. 7. nóvember 2012 07:00 Mest lesið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Fleiri fréttir Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Sjá meira
Instagram kynnir notendasíður Instagram, forrit sem upphaflega var búið til svo að fólk gæti deilt ljósmyndum úr farsímum á samfélagsmiðlum, hefur nú fengið sitt eigið vefviðmót sem þykir um margt minna á notendasíður Facebook. 7. nóvember 2012 07:00