Heiðrar sjómenn með skart-gripalínu fyrir bæði kynin 8. nóvember 2012 00:01 Var umkringdur demöntum í New York Orri Finnbogason skartgripahönnuður vann við demantaísetningar, meðal annars við Tiffany & Co., í New York en nú er hann fluttur heim og frumsýnir skartgripalínuna Akkeri fyrir bæði kynin í kvöld á Kex hostel. Fréttablaðið/vilhelm „
Mig langaði að gera eitthvað með akkerið, tákn sem við þekkjum flest húðflúrað á upphandleggi gamalla sjómanna,“ segir skartgripahönnuðurinn Orri Finnbogason um nýja skartgripalínu sína, Akkeri. Orri er gullsmiður að mennt en hann var búsettur og starfaði við fagið í New York í tíu ár áður en hann ákvað að snúa aftur heim fyrir þremur árum síðan. „Fyrst eftir að ég flutti út vann ég við að flytja demanta milli staða, sem getur verið vandasamt verk. Svo fór ég alfarið í demantaísetningar, en það er alveg sérfag úti,“ segir Orri sem meðal annars vann við að setja demanta í skartgripi fyrir eitt frægasta skartgripafyrirtæki í heimi, Tiffany & Co. Enga demanta er þó að finna í nýju línu Orra, Akkeri, sem er bæði fyrir herra og dömur. Þar er að finna hálsmen, hringa, armbönd og eyrnalokka sem öll skarta tákninu fræga. Orri leitaði eftir innblæstri í íslensku sjómennskuhefðina og heillaðist af akkerinu sjálfu. „Það tengist eitthvað ævintýraþránni sem fylgir sjómennskunni og þeim mikilvæga tilgangi sem akkerið þjónar í sjómannslífinu,“ segir Orri en akkerið er landfestin og gerir sjómönnum kleift að stýra ferðalögum sínum í réttar áttir. Orri hannaði skartgripina með þá einstaklinga í huga sem ganga yfirleitt ekki með skartgripi. „Þetta eru skartgripir fyrir töffara og mig langaði að höfða til þeirra sem ekki eru glysgjarnir að eðlisfari.“ Skartgripir Orra fást í Aurum í Bankastrætinu en í kvöld heldur hann sýningu ásamt Ýri Þrastardóttur, fatahönnuði, á Kex hostel en þar verður hægt að berja nýju línuna augum. Sýningin hefst klukkan 20.
Mest lesið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Lífið Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Tónlist Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Lífið Fengu Dern í stað Bonham Carter Lífið Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Sjá meira