Innlent

Ferlar kynferðisbrotamála verði endurskoðaðir

Skúli Helgason, varaformaður allsherjar- og menntamálanefndar, vill að stofnuð verði sérstök undirnefnd nefndarinnar sem fari yfir ferla kynferðisbrotamála á Íslandi. Að sögn hans fékk tillagan góðan hljómgrunn á nefndarfundi á mánudag.

Allsherjar- og menntamálanefnd hefur haldið tvo fundi eftir að Fréttablaðið birti grein í byrjun október um hlutfall kynferðisbrotamála sem enda með sakfellingu.

„Við fórum yfir þetta og fengum mikinn sjóð af upplýsingum sem við verðum að kafa ofan í,“ segir Skúli. „Við ætlum að halda áfram með þessi mál því það er ljóst að það eru brotalamir í kerfunum sem við verðum að takast á við.“

Hann nefnir þar sérstaklega þann tíma sem getur tekið fyrir kynferðisbrotamál að fara í gegnum kerfið og segir hann slíkt engum bjóðandi. Dæmi eru um að mál hafi tekið tvö ár að fara í gegn.

Þá var einnig rætt á fundunum hvernig hægt sé að styðja við núverandi stofnanir í málaflokknum.

Tillaga Guðrúnar Jónsdóttur, talskonu Stígamóta, um stofnun embættis sérstaks saksóknara kynferðisbrota, var lögð fyrir fundargesti en að sögn Skúla var talið að aðrar leiðir skiluðu betri árangri.

Innan við þrjú prósent kynferðisbrotamála sem kærð eru til lögreglu enda með sakfellingu fyrir dómi eftir að ríkissaksóknari hefur fengið þau inn á borð til sín. Um 75 prósent mála sem tilkynnt eru til lögreglu fara ekki áfram til meðferðar hjá embættinu. - sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×