Yfir tuttugu virkjanakostir í athugun 2. ágúst 2012 05:00 Landsvirkjun er með þrjá virkjanakosti í neðanverðri Þjórsá til athugunar. Meðal annars Hvammsvirkjun, en myndin er tekin á hennar slóðum. fréttablaðið/vilhelm
Landsvirkjun stendur fyrir athugun á fjölda virkjanakosta, bæði hvað varðar jarðvarma- og vatnsaflsvirkjanir. Formaður Samorku segir eðlilegt að rannsaka virkjanakosti sem settir eru í biðflokk í rammaáætlun. Náttúruverndarsinnar gagnrýna boranir við Þjórsá. Nokkuð hefur verið rætt um rannsóknir Landsvirkjunar á svæðum sem eru sett í biðflokk í tillögu að rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Þar hefur verið horft á Þjórsá og Stóru Laxá, svo dæmi séu nefnd. Fréttablaðinu lék forvitni á að vita hvaða rannsóknum fyrirtækið stæði fyrir og upplýsingafulltrúi þess vísaði til ársskýrslu fyrir árið 2011. Samkvæmt henni er Landsvirkjun með 21 virkjanakost í athugun. Við það bætast rannsóknir á virkjun í Stóru-Laxá, þannig að kostirnir eru orðnir 22. Alls eru 11 vatnsaflskostir til skoðunar og 9 jarðvarmakostir. Við það bætast vindaflstöðvar við Búrfell, sem eru til rannsóknar. Afl fyrirhugaðra vatnsaflsvirkjana er 675 MW, en úr jarðvarma á að fá 625 MW og 2 að auki úr vindaflsvirkjunum sem eru til rannsóknar. Það gera 1.302 MW. Jarðhiti á NorðausturlandiNæstu verkefni Landsvirkjunar eru á jarðhitasvæðum í Bjarnarflagi og á Þeistareykjum. Í skýrslunni kemur fram að þau bjóði upp á mikla möguleika. „Boranir hafa þegar sannreynt að unnt er að virkja um 100 MW og rannsóknir benda til allt að 400 MW aflgetu svæðanna samanlagt, að Kröflusvæðinu meðtöldu.“ Landsvirkjun bauð í júní út borun á allt að þremur háhitaholum við Bjarnarflag, þannig að verkefnið er komið vel á veg. Fyrirtækið hefur undanfarin ár unnið að undirbúningi þriggja til fjögurra virkjana á áðurnefndum háhitasvæðum á Norðausturlandi. Neðanverð ÞjórsáLandsvirkjun hefur um árabil unnið að rannsóknum að þremur virkjunum í neðanverðri Þjórsá; Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun. Mati á umhverfisáhrifum virkjananna er lokið og hafa þær allar verið teknar inn á aðalskipulag viðkomandi sveitarfélaga. Virkjanirnar voru færðar úr nýtingarflokki yfir í biðflokk í vinnu við rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Fréttablaðið greindi frá því í vikunni að Landsvirkjun hefði haldið rannsóknum sínum áfram á svæðinu og meðal annars borað til að kanna gæði bergs á fyrirhugaðri stöðvarhúsalóð. Rannsóknirnar hafa leitt í ljós að hægt er að auka arðsemi virkjananna miðað við það sem áætlað var. Kostnaður við hverja orkueiningu við Hvamms- og Holtavirkjun getur lækkað um 8 prósent. Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur biðlað til fyrirtækisins um að fara sér hægt þar til vinnu við rammaáætlun lýkur og eins og sést hér til hliðar eru skiptar skoðanir á rannsóknunum. Blönduleið og HágöngurMeðal þeirra virkjana sem eru til athugunar hjá Landsvirkjun er Skrokkölduvirkjun, en hún byggist á því að vatni verður veitt frá Hágöngulóni að Skrokköldu. Árið 2010 hófst vinna við að skoða mögulegar virkjanir á veituleið Blönduvirkjunar og er stefnt að því að á árinu 2012 sé sú virkjanatilhögun sem hagkvæmust þykir þar verkhönnuð. Þá er stefnt að stækkun Búrfellsvirkjunar, en orkuútreikningar sýna að hægt er að auka orkugetu kerfisins um 208 gígavattsstundir á ári ef virkjunin er stækkuð um 70 MW. Áætluð orkugeta jarðhitasvæðisins í Köldukvíslarbotnum við Hágöngur er talin vera 2.000 til 3.200 gígavattsstundir á ári. Djúpborun hefur farið fram á svæðinu.
Mest lesið „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Innlent Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Erlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Innlent Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Innlent Fasteignamat lækkar að raunvirði Innlent Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Innlent Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Erlent Fleiri fréttir Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Bein útsending: Lyklaskipti í borginni Horfði á gamla fundi til að undirbúa sig „Góður dagur fyrir nýja tíma í Reykjavík“ Fyrsti fundur borgarstjórnar, ný rannsóknarnefnd og bein Jónasar Rannsóknarnefnd mun skoða aðstæður barna á einkaheimilum Sjá meira