„Hörmuleg öfugþróun“ segir fyrrverandi efnahagsráðherra 5. mars 2012 08:00 Fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra gagnrýnir harðlega að útgjöld til almannatrygginga hafi verið aukin um nærri fjórðung án þess draga úr skerðingum vegna annarra tekna.Fréttablaðið/Anton
Árni Páll Árnason, alþingismaður Samfylkingar og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, varð undir í átökum við ríkisstjórnarborðið við gerða kjarasamninga í fyrra. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Árna. „Framganga þín við ríkisstjórnarborðið og áhersla á lágt raungengi hafði nærri sprengt samningana og hleypt öllu í uppnám á vinnumarkaði,“ skrifar Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, á Facebook-síðu Árna. Gylfi segir ráðherrann fyrrverandi nærri hafa eyðilagt gerð síðustu kjarasamninga. Gylfi leggur út af viðtali ríkisútvarpsins við Árna á fimmtudag í síðustu viku. Segist hann vera „í forundran yfir endurteknum fullyrðingum“ Árna um kjarasamningana. „Ég tók þó eftir því að þú nefndir það ekki að þú teldir mikilvægt að halda raungengi krónunnar mjög lágu næstu árin (og þar með kaupmætti í lágmarki) til að tryggja mikinn afgang af viðskiptajöfnuði og endurgreiða vogunarsjóðum áhættufjárfestingar sínar hér á landi. Né heldur framgöngu þína gegn hækkun lægstu launa, atvinnuleysisbóta og bóta almannatrygginga,“ skrifar Gylfi til Árna. Árni svarar að langt sé seilst í að gera því skóna að hann hafi það sem sjálfstætt markmið að draga úr kaupmætti með lágu gengi og berjast gegn hækkun lægstu launa og bóta. Hann hafi hins vegar sem efnahagsráðherra ítrekað bent á að allir þeir sérfræðingar sem efnahagsráðuneytið hafði yfir að ráða teldu lágt og stöðugt raungengi forsendu efnahagslegs viðsnúnings. Árni kveðst hafa neitað að standa að ákvörðunum um efnahagsstefnu sem ekki var byggð á trúverðugri greiningu. „Það er svo áfellisdómur yfir vinnubrögðum nýrra tíma á Íslandi að fagleg greining af þessum toga sé virt að vettugi án efnislegra gagnraka og ráðuneyti, sem leggi fram óþægilegar greiningar, séu lögð niður,“ segir Árni í færslu sinni. Árni kveðst hafa lagst eindregið gegn því að ríkisstjórnin kysi í júní 2011 dýrari útfærslu í hækkun bóta almannatrygginga en síðustu kjarasamningar kváðu á um og sem ASÍ hafi ekki gert kröfu um. „Ég hafnaði algerlega að skuldbinda ríkið til gríðarlegra útgjalda án þess að nokkur greining á kostnaði og áhrif á ríkisfjármál lægi fyrir, eins og forysta ríkisstjórnarinnar gerði tillögu um. Í þessu varð ég undir eftir mikil átök í upphafi júnímánaðar 2011,“ segir Árni. Útgjöld til almannatrygginga hafi verið aukin um 23 prósent milli áranna 2010 og 2011 en án þess að skerðing vegna atvinnutekna eða lífeyristekna hafi verið dregnar til baka og án þess að draga úr fátæktargildrum og greiða fyrir því að launavinna borgaði sig. „Það kalla ég glatað tækifæri og hörmulega öfugþróun.“ Gylfi segir þá Árna sammála um að aðildarviðræðurnar við ESB og evruna séu brýnasta verkefnið. „En láttu ekki blekkja þig með að hægt sé að reisa Ísland úr öskunni með því að láta almennt launafólk blæða fyrir áframhaldandi krónunotkun með því að halda raungenginu lágu til að skaffa gjaldeyri til að hleypa vogunarsjóðum sem eiga hér krónueignir úr landi. Þjóðin vill ekki borga skuldir óreiðumanna, ekki heldur með bágum lífskjörum!“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Erlent Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Innlent Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Innlent Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Innlent Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Innlent Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Erlent Hvalfjarðargöng eru lokuð Innlent Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Innlent Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Innlent Fleiri fréttir Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Enn annað innbrot í Laugardalnum Ráðherra um árásir, lögblindur sjúkraþjálfari og álftarungar á hóteli Hvalfjarðargöng eru lokuð Bíll valt eftir aftanákeyrslu Símasambands- og netlaust fyrir austan Metfjöldi með doktorspróf úr HR „Við lifum ekki á friðartímum“ Krísa í Kattholti: Fólk losar sig við ketti á sumrin Íranir án bandamanna, svimandi hátt verðlag og krísa í Kattholti Sögulega lítið fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Tveir handteknir grunaðir um eignaspjöll Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sjá meira
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent