Óttast að Marel þurfi að fara úr landi 3. mars 2012 05:00 Theo Hoen
Theo Hoen, forstjóri Marels, óttast að fyrirtækið þurfi að yfirgefa landið verði gjaldeyrishöft lengi við lýði. Þá sé nauðsynlegt að skýra hvernig peningamálum verði hér háttað til frambúðar. Hoen flutti erindi á ráðstefnu sem Landsbankinn stóð fyrir í fyrradag undir yfirskriftinni „Hvað þarf til að halda íslenskum fyrirtækjum í landi?“ Hoen sagði margt jákvætt við að hafa höfuðstöðvar á Íslandi. Hér væru langtímahluthafar sem gæfu fyrirtækinu tækifæri til að vaxa og dafna. Þá fengi það rými til að athafna sig svolítið utan sviðsljóssins þar sem fyrirtæki í íslensku kauphöllinni nytu minni athygli en til dæmis fyrirtæki í kauphöllinni í heimalandi Hoen, Hollandi. Þá væri hér vel menntað vinnuafl og samfélag sem styddi dyggilega við starfsemina. Hoen sagði aftur á móti ýmsa ókosti við Ísland, helst gjaldeyrishöftin og krónuna. Höftin og gengisáhætta vegna flökts krónunnar gerðu það að verkum að alþjóðlegir fjárfestar vildu ekki fjárfesta í Marel þrátt fyrir að lítast vel á fyrirtækið. Sagðist Hoen því óttast að sá vegur sem Marel væri á hér innanlands væri blindgata yrði ekki leyst úr þessum vanda. Tók Hoen dæmi af bandarískum fjárfesti sem ætti stóran hlut í Marel. Hoen hafði eftir honum að hann þyrfti að reikna með 20 til 30 prósenta afföllum af virði hluta sinna vegna gengisáhættu. Af þessum sökum fái Marel fáa erlenda fjárfesta sem séu alþjóðlegu fyrirtæki nauðsynlegir. Þá gerðu höftin Marel einnig erfitt fyrir að veita starfsmönnum kauprétti sem væri svo aftur nauðsynlegt til að lágmarka starfsmannaveltu. Loks nefndi Hoen skort á tæknimenntuðu vinnuafli sem ókost við íslenskt atvinnulíf. - mþl
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Fleiri fréttir Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Sjá meira