Sorpu á Álfsnesi líkt við stóran útikamar 1. mars 2012 05:00 Ljósmyndari Fréttablaðsins fékk ekki leyfi til að fara inn á urðunarstað Sorpu í Álfsnesi í gær. Fréttablaðið/Valli „
Við viljum fá bæinn í lið með okkur og fara með málið fyrir umhverfisnefnd Alþingis og lengra,“ segir Rúnar Þór Guðbrandsson, formaður íbúasamtaka Leirvogstungu í Mosfellsbæ sem enn kvarta vegna ólyktar frá urðunarstöð Sorpu í Álfsnesi. Sorpa hefur meðal annars brugðist við kvörtunum vegna óþefsins með því að sprengja gjá til seyrulosunar. Í hana fer lífrænn úrgangur á borð við þann sem situr eftir í skolphreinsikerfi höfuðborgarbúa. „Þetta er eins og risastór útikamar,“ lýsir Rúnar sem kveður framkvæmdina misheppnaða. „Sorpa er farin að sveigja all svakalega út af braut og hugsar fyrst og fremst um peninga frekar en að vera það samfélagsþjónustufyrirtæki sem það á að vera,“ segir Rúnar og vísar til þess að Sorpa taki við illa lyktandi lífrænum úrgangi til vinnslu í Álfsnesi þótt fyrirtækið sé vanbúið til þess. Á sama tíma sé Sorpeyðingarstöðin Kalka á Suðurnesjum með réttu aðstöðuna og bjóðist til að farga illa lyktandi úrgangi en fái ekki. „Sorpa fær borgað fyrir að taka á móti þessu og gerir það frekar í þeirri von að vindáttin verði hagstæð og þeir sleppi fyrir horn.“ Björn Hafsteinn Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu, segir fyrirtækið gera það sem það geti. „Við höfum aldrei sagt að við getum losað íbúa við alla lykt,“ segir Björn sem kveður Sorpu fylgjast með því hvernig til hafi tekist að minnka ólyktina, meðal annars með því að gera kannanir meðal íbúa. „Þær benda eindregið til þess að kvörtunum sé að fækka.“ Björn er ekki sáttur við að Sorpa sé sögð hafa þráast við að flytja lyktarvondan úrgang til Kölku. „Við fórum með þennan úrgang á Suðurnesin í fyrrasumar. En brennslustöðin þar lokaði einfaldlega í einn og hálfan mánuð,“ segir Björn. Nú sé slíkur úrgangur tekinn til meðferðar á Álfsnesi í aðstöðunni sem útbúin hafi verið þar í áðurnefndri gjá. „Það má alveg nota þá lýsingu,“ segir Björn um samlíkingu Rúnars við risastóran útikamar. „Þetta hefur verið mjög erfitt mál. Þess vegna höfum við lagt áherslu á að reist verði hér gasgerðarstöð sem taki þennan lífræna úrgang, breyti honum í metangas og losi okkur við lyktina í leiðinni.“ Í bókun sem fulltrúi Mosfellsbæjar lagði fram í stjórn Sorpu 24. febrúar síðastliðinn er lýst vonbrigðum bæjarráðsins með að kostnaðarsamar aðgerðir gegn lyktarmenguninni hafi ekki skilað tilætluðum árangri. Jafnframt með það hversu vinna við að skoða möguleika á nýjum urðunarstöðum sé stutt á veg komin. „Þetta hefur dregist, það skal viðurkennast. Nú hefur verið ráðinn ráðgjafi í þetta mál og hann er byrjaður,“ segir framkvæmdastjóri Sorpu. gar@frettabladid.is
Mest lesið Annar bíll möglega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Innlent Vara við því að færð spillist í kvöld Innlent Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt Innlent „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Innlent Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Innlent Lögreglan leitar manns Innlent Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Erlent Nýr samfélagsmiðill bara fyrir íslenskt samfélag Innlent Ástæða til að forðast hinn tvöfalda lás Innlent Ungir menn sátu fyrir bjórsala og rændu tugum vodkaflaska Innlent Fleiri fréttir Fleiri reita hár sitt yfir skorti á þrifum en nagladekkjum Kvikuhlaup og eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Grásleppan hleypir upp störfum þingsins Hættur sem framkvæmdastjóri Framsóknar Fyrrverandi markvörður vill fram fyrir Miðflokk Viðgerð vegna eldsvoða að ljúka og Landspítali fær pláss Ungir menn sátu fyrir bjórsala og rændu tugum vodkaflaska Stærstur hluti foreldra falli algjörlega utan afsláttarkerfis Lögreglan leitar manns Annar bíll möglega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Ný leið í leikskólamálum kynnt og von á snjókomu í kvöld Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Deila um vegslóða fyrir Hæstarétt Körfuboltastjarna íhugar framboð í Garðabæ Íhugar alvarlega formannsframboð hjá Vinstri grænum Ástæða til að forðast hinn tvöfalda lás Komi öllum við hverjir kaupa vændi eða ætli að gera það Vara við því að færð spillist í kvöld Sundhöllinni lokað á meðan píparar ráða ráðum sínum Flykktust upp í turn til að sjá hvort sexan kæmist í loftið Kynna breytta Reykjavíkurleið Bein útsending: Ásgeir og Þórarinn mæta fyrir þingnefnd Dregur líklega úr svifryksmengun seint í dag Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Grunaður fíkniefnasali stöðvaður fyrir að tala í síma Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Nýr samfélagsmiðill bara fyrir íslenskt samfélag Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Sjá meira