Dagsektir vegna ókláraðs turns 28. febrúar 2012 04:00 Bæjarráð hefur samþykkt að gera þriggja mánaða frest til að gera áætlun um framhald framkvæmda við húsið. Fréttablaðið/Vilhelm
Bæjaryfirvöld í Kópavogi ætla ekki að beita mannvirkjalögum til að annað tveggja láta rífa Norðurturninn við Smáralind eða ljúka við bygginguna. Fram hefur komið í Fréttablaðinu að Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. telur það valda því fjárhagstjóni að Norðurturninn sé ókláraður utan í verslunarmiðstöðinni. Eigandi Norðurturnsins er gjaldþrota. Í umsögn skrifstofustjóra umhverfissviðs Kópavogs til bæjarráðs er vitnað til þess að Helgi Birgison skiptastjóri segi viðræður í gangi um framtíð byggingarinnar. „Full ástæða er til þess að taka mið af þeim óvenjulegu efnahagsaðstæðum sem ríkja um þessar mundir og gefa aðilum nokkuð svigrúm til þess að leita leiða til að klára bygginguna,“ segir skrifstofustjórinn sem kveður umfang verkefnisins slíkt að tæplega komi til álita að bærinn beiti mannvirkjalögum og láti klára verkið eða rífa bygginguna. Eina úrræðið sé beiting dagsekta sem séu með lögveði í byggingunni. Umdeilanlegt sé hvort árangursríkt sé að beita þrotabú dagsektum. Bæjarráð ákvað að ef viðræður um framtíð Norðurturnsins skila árangri verði kallað eftir framkvæmdaáætlun frá nýjum eigendum. Verði hins vegar enginn framgangur á næstu þremur mánuðum verði kannað hvort skilyrði séu fyrir dagsektum. - gar
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira