Innlent

Lífeyrissjóðir ósáttir við innleysingu skatts

Lífeyrissjóðirnir mega ekki gefa eignir eftir. Þeir telja að verði skattur á frjálsan viðbótarsparnað innleystur dragi það úr stöðugleika kerfisins og tiltrú almennings.fréttablaðið/valli
Lífeyrissjóðirnir mega ekki gefa eignir eftir. Þeir telja að verði skattur á frjálsan viðbótarsparnað innleystur dragi það úr stöðugleika kerfisins og tiltrú almennings.fréttablaðið/valli
„Það er fljótsagt, þetta fellur í mjög grýttan farveg á meðal lífeyrissjóðanna,“ segir Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, um hugmyndir Helga Hjörvar, formanns efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, um aðkomu sjóðanna að niðurfærslu verðtryggðra lána.

Helgi sagði í Fréttablaðinu í gær að ríkið ætti að innleysa skatttekjur á frjálsan hluta viðbótarlífeyrissparnaðar. Þá bendir hann á að lífeyrissjóðirnir hafi fengið 20 milljarða aukaafslátt af verðtryggðum skuldabréfum sem keypt voru af Seðlabanka Lúxemborgar eftir hrunið. Þessa fjármuni megi nýta í niðurfærsluna.

Þórey segir ótækt að blanda saman viðskiptum sem áttu sér stað árið 2010 við breytingar á íbúðalánum nú. „Í þessum viðskiptum leystu lífeyrissjóðirnir inn dýrmætan gjaldeyri í gjaldeyrishöftum, þannig var aðkoma þeirra. Okkur þykir því ótækt að blanda þessu tvennu saman.“

Þórey segir ýmis rök mæla gegn hugmyndinni um að leysa inn skatttekjur á séreignasjóðina. „Í raun væri með því verið að draga úr stöðugleikanum í kerfinu og draga úr tiltrú almennings á kerfinu. Þetta dregur úr vali einstaklinga um hvenær þeir ætla að nýta tekjur sínar og borga skatta. Þá eykur þetta ekki tekjur ríkisins, heldur hliðrar þeim í tíma. Þannig eykst byrði komandi kynslóða.“

Þórey segir að verði þetta að veruleika aukist líkurnar á því að ríkið beri stærri skerf af lífeyrisgreiðslum í framtíðinni. „Þetta mundi auka eyðsluna í dag og þýða minni sparnað og minni lífeyri. Byrðar almannatryggingakerfisins mundu því aukast í framtíðinni.“

Innan lífeyrissjóðanna er ekki verið að skoða hvort hægt sé að koma til móts við lántakendur með niðurfærslu lána. „Nei, að sjálfsögðu ekki. Lífeyrissjóðunum er ekki heimilt að gefa eftir eignir. Ef á að koma til móts við einhverja verður það að gerast í gegnum skattkerfið. Það þýðir ekki að einblína á lífeyrissjóðina til að leysa þessi mál.“kolbeinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×