Loðnan mokveiðist uppi í harða landi 27. febrúar 2012 03:15 Upp í harða landi Á laugardag voru um 20 loðnuskip á veiðum undan Krýsuvíkurbjargi en torfan var út af Grindavík í gær.
Loðnuflotinn var í gær í mokveiði utan við Grindavík. Stór köst fengust um morguninn úr stærstu torfunni við Reykjanesið. Yfir 400 þúsund tonn eru þegar komin á land og hrognataka og frysting hefst í vikunni. „Það var mokveiði hérna úti af Grindavík í morgun. Mikið að sjá og stórar torfur,? segir Ólafur Einarsson, skipstjóri á Álsey VE 2, í viðtali við Fréttablaðið. ?Við fylltum í fjórum köstum. Við köstuðum tvisvar á útleiðinni, ekki langt frá Eyjum. Við fylltum síðan í tveimur köstum í morgun,“ segir Ólafur en Álsey tekur um 1.700 tonn. Þegar Álsey var við veiðar voru fimm önnur skip við veiðar. Álsey landar á Þórshöfn, en siglingin norður á Langanes er yfir 400 mílur. Ólafur segir að það sé ekki óskastaðan að sigla með aflann svo langa leið. Tafir verða frá veiðum í nokkra sólarhringa en þó sé nauðsynlegt að dreifa aflanum á milli starfsstöðva Ísfélagsins. Ólafur telur að um þrjár vikur séu eftir af vertíðinni, ekki sé ólíklegt að loðnan verði veiðanleg fram undir 20. mars. Því telur Ólafur að það verði vandkvæðalaust að ná kvótanum, að því gefnu að friður verði fyrir veðri. Á heimasíðu Fiskistofu kemur fram að 383 þúsund tonn séu komin á land af 590 þúsund tonna kvóta, eða um 65 prósent af kvótanum. Það þýðir í raun að veiðin er þegar orðin vel rúmlega 400 þúsund tonn þar sem veiðin er alltaf lítillega vanskráð í veiðum sem ganga hratt fyrir sig. Ólafur segir mikið að sjá af loðnu, þó aðalgangan sé úti af Grindavík. „Það er alltaf eitthvað að sjá hérna austar. Þetta lítur vel út,“ segir Ólafur. Eins og greint hefur verið frá er þess vænst að útflutningsverðmæti í loðnu losi 30 milljarða króna. svavar@frettabladid.isVísir/Óskar Friðriksson
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira