Setur stefnuna á að ná 100 blóðgjöfum 27. febrúar 2012 07:00 Hafdís Karlsdóttir er ein af staðfastari blóðgjöfum og hefur nú gefið 36 sinnum, fleiri en nokkur kona á hennar aldri. „
Ég byrjaði að gefa blóð um leið og ég hafði aldur til, sennilega á átjánda afmælisdeginum mínum," segir Hafdís Karlsdóttir sem náði þeim merka áfanga á dögunum að verða yngsta konan frá upphafi til að gefa blóð oftar en 35 sinnum, tæplega 29 ára gömul. „Ég er reyndar búin að gefa 36 sinnum, því að ég gaf í desember og svo fer ég upp í 37 núna í mars." segir Hafdís í samtali við Fréttablaðið og bætir því við að hún sé hvergi nærri hætt enda sé blóðgjöf henni hjartans mál. „Þegar ég var lítil fór ég alltaf með mömmu að gefa blóð í Blóðbankanum. Mér fannst þetta ofsalega gaman, kökur í boði og góðar konur sem tóku á móti manni. En svo rak ég einu sinni augun í lista yfir „hundraðshöfðingja", þá sem hafa gefið blóð oftar en hundrað sinnum, og það voru bara karlar. Mér þótti það skrýtið og spurði hvar konulistinn væri, en þá útskýrði mamma fyrir mér að það væri engin kona sem hefði náð því að gefa blóð hundrað sinnum. Ég hét því þá að verða fyrsta konan til að komast í þennan hóp." Hafdís lætur sitt alls ekki eftir liggja og hefur meira að segja fengið sérstaka undanþágu til að fá að gefa blóð oftar en reglur gera ráð fyrir. „Konur mega alla jafna bara gefa á fjögurra mánaða fresti, en ég fékk í gegn að mega gefa á þriggja mánaða fresti svo lengi sem ég mælist með jafn hátt járnmagn í blóði og karlamaður." Hafdís er því á góðri leið með að ná sínu takmarki. „Eftir fimm ár verð ég komin í fimmtíu skipti þannig að ég verð örugglega komin í hundrað áður en ég verð komin á elliheimili," segir Hafdís og hlær. Hún segir ástæðuna að baki blóðgjöfinni einnig vera hversu ánægjulegt sé að geta látið gott af sér leiða. Hún sé líka óþreytandi við að hvetja vini og ættingja að fara að sínu ráði. „Ég er ekki trúuð manneskja, en ef ég kem einhvern tíma fyrir Lykla-Pétur er ég viss um að þetta mun telja með mér. Mér finnst bara að flestir ættu að gefa blóð sem geta auk þess sem fleiri mættu gefa því að það er mikil þörf á blóði. Það eru mörg börn með hvítblæði og til dæmis hefur amma mín þurft að fara í stóra aðgerð þar sem hún þurfti á blóði að halda." Hafdís segist að lokum ekki ætla að hætta þótt hún nái settu marki. „Ég ætla að halda mínu striki og gefa blóð á meðan ég hef heilsu til." thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira