Innlent

Vilja frjálsan opnunartíma

Stjórn Hallveigar telur að takmarkanir á opnunartíma færi skemmtanalífið úr miðborginni og inn í íbúðahverfi.Mynd/HARI
Stjórn Hallveigar telur að takmarkanir á opnunartíma færi skemmtanalífið úr miðborginni og inn í íbúðahverfi.Mynd/HARI
Hallveig, félag ungra jafnaðarmanna í Reykjavík, hefur ályktað að gera eigi opnunartíma skemmtistaða í miðborg Reykjavíkur frjálsan. Telur stjórn félagsins það ekki í verkahring borgaryfirvalda að stjórna opnunartíma skemmtistaða.

Í ályktuninni segir að takmörkun á opnunartíma sé skaðleg fyrir rekstur skemmtistaða og færi skemmtanalífið úr miðborg og inn í íbúðahverfi þangað sem lögregla hafi ekki eins góða yfirsýn yfir það. Þá geti það valdið fjölskyldufólki áreiti. Loks harmar félagið að borgarstjórnarmeirihluti Samfylkingarinnar og Besta flokksins hafi ákveðið að stytta opnunartíma skemmtistaða á þessu kjörtímabili.- mþl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×