Ólíkar væntingar um vöxt fjárfestingar 17. febrúar 2012 07:00 Búist er við því að hagvöxtur muni á næstunni byggja á aukinni fjárfestingu fremur en aukinni einkaneyslu sem hefur verið helsti aflvaki hagvaxtar upp á síðkastið. Fréttablaðið/anton
Talsverður munur er á nýbirtum hagvaxtarspám Seðlabankans og ASÍ. Seðlabankinn spáir 2,5% hagvexti á þessu ári en spá ASÍ hljóðar upp á 1,5% vöxt. Skýrist munurinn að stórum hluta af ólíkum væntingum um vöxt fjárfestingar í hagkerfinu. Telur Seðlabankinn að fjármunamyndun aukist um 17,5% á árinu en ASÍ gerir ráð fyrir 9,4% vexti. Í spánni fyrir árið 2013 snýst þetta svo við þar sem ASÍ spáir 17,6% vexti í fjárfestingu en Seðlabankinn 6,5% vexti. Spá Seðlabankans byggir meðal annars á væntingum um umtalsverða aukningu á fjárfestingu í skipum og flugvélum. Þá virðist Seðlabankinn gera ráð fyrir nokkurri aukningu í fjárfestingu í stóriðju en gerir þó ekki ráð fyrir nýjum verkefnum svo sem álveri í Helguvík. Meðal annarra helstu áhættuþátta með tilliti til hagvaxtar eru þróun alþjóðahagkerfisins og verðþróun helstu útflutningsafurða. Í Peningamálum Seðlabankans kemur fram að spár um hagvöxt á þessu ári í flestumviðskiptalöndum Íslands hafi verið lækkaðar. Þá hafa spár um vöxt alþjóðaviðskipta einnig verið lækkaðar og Seðlabankinn því brugðist við með því að lækka spá sína um vöxt útflutnings. Þá gerir Seðlabankinn ráð fyrir að verð helstu útflutningsafurða verði nokkru óhagstæðara en áður var talið. Álverð er talið verða um 7% lægra á þessu ári en í fyrra. Verð á sjávarafurðum er aftur á móti talið líklegt til að hækka um 4% en áður spáði bankinn 6% hækkun. - mþl
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Fleiri fréttir Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Sjá meira