Vafasamt greiðslumat leysir fólk undan ábyrgð á lánum 17. febrúar 2012 07:00 Bróðirinn tók lánið hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar árið 2006. Þremur og hálfi ári síðar var hann gjaldþrota. Fréttablaðið/stefán
Héraðsdómur leysir mann undan ábyrgð á láni bróður síns því að Íslandsbanki á engin gögn um greiðslumat. Getur haft áhrif á fjölmarga, segir umboðsmaður skuldara. Fallið frá ábyrgð í þriðjungi vafamála. Maður sem gekkst í ábyrgð fyrir láni bróður síns árið 2006 hefur verið leystur undan henni með dómi. Ástæðan er sú að bankinn sem veitti lánið getur ekki sýnt fram á að greiðslugeta bróðurins hafi raunverulega verið metin á sínum tíma. Dómurinn hefur fordæmisgildi fyrir fjölda fólks, að því gefnu að hann standi, segir Svanborg Sigmarsdóttir, upplýsingafulltrúi Umboðsmanns skuldara. „Það eru fjölmargir ábyrgðarmenn á lánum einstaklinga þar sem ekki hefur verið farið eftir þessu samkomulagi og ábyrgðin ætti því að falla niður," segir Svanborg og vísar til samkomulags frá 2001 um notkun ábyrgða, sem dómurinn telur að hafi ekki verið virt í þessu tilviki. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í fyrradag. Hann snýst um 1,3 milljóna króna lán sem maður tók hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar, sem síðar varð Byr, til að kaupa sér lóð á Akranesi. Hann var úrskurðaður gjaldþrota haustið 2009 og í kjölfarið gekk Byr að bróður hans, þeim sem höfðaði málið, á grundvelli ábyrgðarinnar og gerði fjárnám í tveimur fasteignum hans. Eftir að hann ákvað að fara með málið fyrir dóm var beðið með að taka af honum húsin. Maðurinn fór fram á að fjárnámið yrði ógilt þar sem Íslandsbanki, sem hefur tekið Byr yfir, gæti ekki sýnt fram á að greiðslugeta bróður hans hefði verið metin á sínum tíma, þótt svo segði á skjölum sem maðurinn undirritaði. Hann fullyrðir að hann hefði aldrei gengist í ábyrgð fyrir bróður sinn ef mat á greiðslugetu hans hefði bent til þess að hann gæti ekki efnt skuldbindingar sínar, eins og síðar kom í ljós. Íslandsbanki fullyrðir að greiðslumatið hafi verið unnið en hins vegar hefur komið í ljós að gögn um það eru hvergi til. Niðurstaða héraðsdóms er að bankinn þurfi að bera kostnaðinn og er ábyrgðinni því vikið til hliðar. Svanborg segir að embætti Umboðsmanns skuldara hafi fengið inn á borð til sín tæplega tvö hundruð mál þar sem kanna þarf gildi ábyrgða. „Og þar af hefur verið fallið frá ábyrgð í um þriðjungi mála," segir hún. Öllu jafna snúist það um hvernig staðið var að greiðslumatinu.- sh
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira