Minnihluti fylgjandi Vaðlaheiðargöngum 13. febrúar 2012 06:30
Um 28 prósent landsmanna vilja að ráðist verði í gerð Vaðlaheiðarganga í ríkistryggðri einkaframkvæmd en 47 prósent eru því andvíg, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Alls sagðist 15,1 prósent mjög fylgjandi því að göngin verði gerð í einkaframkvæmd og 13,1 prósent frekar fylgjandi. Um 17,7 prósent sögðust því frekar andvíg og 29,5 prósent sögðust mjög andvíg hugmyndinni. Nærri fjórðungur, 24,6 prósent, sagðist hvorki fylgjandi né andvígur lagningu ganganna í ríkistryggðri einkaframkvæmd. Íbúar landsbyggðarinnar eru almennt hlynntari því að ráðist verði í gerð ganganna. Alls sagðist 42,1 prósent þeirra sem búsettir voru utan höfuðborgarsvæðisins mjög eða frekar fylgjandi áformunum, en 39,1 prósent sagðist mjög eða frekar andvígt þeim. Talsvert lægra hlutfall íbúa höfuðborgarsvæðisins, 24,6 prósent, sagðist hlynnt göngunum, en 51 prósent var á móti því að gera þau í ríkistryggðri einkaframkvæmd. Hringt var í 800 manns þann 8. og 9. febrúar. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá og skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Ert þú fylgjandi því eða andvíg(ur) að ráðist verði í gerð Vaðlaheiðarganga í einkaframkvæmd með ríkisábyrgð? Alls tóku 91,9 prósent afstöðu.Beðið um framlengingu á tilboði Lægsta tilboð í Vaðlaheiðargöng rennur út á morgun, 14. febrúar. Formleg ósk um að það verði framlengt um fjóra mánuði var lögð fram fyrir helgi. Fjórir mánuðir eru liðnir frá því að tilboð voru opnuð í gerð Vaðlaheiðarganga en lægsta boð kom frá ÍAV og Marti og var upp á tæpa níu milljarða króna, um hálfum milljarði króna undir kostnaðaráætlun. Stjórn Vaðlaheiðarganga hefur nú farið þess á leit við verktakana að þeir framlengi tilboð sitt um fjóra mánuði. Með framlengingu tilboðsins vonast menn til að skapa Alþingi nægilegt svigrúm til að móta endanlega afstöðu til verkefnisins.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Eldur í Árbænum Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira