Rammaáætlun felur ekki í sér endanlega úthlutun 13. febrúar 2012 06:00 Mikill styr stendur um fyrirhugaðar virkjanir í neðri hluta Þjórsár, en rammaáætlun gerir ráð fyrir þremur virkjunum þar. fréttablaðið/anton
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir ekki rétt að halda því fram að í rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða felist endanleg úthlutun þeirra náttúrusvæða sem þar eru undir. Vinna við áætlunina er á lokaspretti og hún segir hana vera forgangsverkefni hjá sér og Oddnýju G. Harðardóttur, starfandi iðnaðarráðherra. „Ég hef velt upp þeirri spurningu í hvaða stöðu núlifandi kynslóð er að setja sig gagnvart framtíðinni með því að taka þessar ákvarðanir í eitt skipti fyrir öll, en fyrst og fremst er þetta mjög mikilvægt ferli sem ég er alveg handviss um að er náttúruvernd til framdráttar.“ Hugmyndin að baki rammaáætluninni var að skrá þau náttúrusvæði sem mætti nýta, svo sem til virkjana, og þau sem ætti að vernda. Einhver lenda svo í biðflokki og ákvörðun varðandi þau bíður þá betri tíma. Svandís segir þessa afstöðu sína ekki ganga gegn grunnhugsun áætlunarinnar. „Nei, en ég tel rétt að halda þeirri spurningu vakandi hvaða vald við erum að taka okkur.“ Samkvæmt þingmálaskrá á að leggja rammaáætlun fram í byrjun febrúar. Ljóst er að málið gæti orðið ríkisstjórninni erfitt, enda umdeilt hvar á að virkja og hvar vernda. Málið er nú á borði umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra. Þegar þeir hafa náð saman um það verður það kynnt í ríkisstjórn og þaðan fer það fyrir stjórnarflokkana áður en það er lagt fyrir Alþingi. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er nú unnið að því að ná sátt um að tillagan breytist ekki í meðförum þingsins; komi þaðan út eins og hún fór þangað inn. Telja menn að ef opnað verði fyrir umræðu um einstaka kosti þýði það umræðu um hvert og eitt einasta landsvæði. Því þurfi að ná sátt um umdeild svæði eins og neðri hluta Þjórsár áður en málið kemur á Alþingi. Kostnaður við 2. áfanga áætlunarinnar er um hálfur milljarður. Við það bætist undirbúningskostnaður á árunum 2005 til 2006 og einhver kostnaður við 1. áfanga áætlunarinnar. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Fleiri fréttir Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Sjá meira