Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok 11. febrúar 2012 08:00 Reiknað er með að auglýsingatekjur RÚV dragist saman um allt að 200 milljónir króna á ári verði frumvarpið að lögum. Páll Magnússon er útvarpsstjóri. fréttablaðið/GVA
Íslensk stjórnvöld telja að nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni innleiða ellefu svokallaðar „viðeigandi ráðstafanir“ varðandi fjárhags- og lagaumhverfi RÚV, verði það að lögum. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) fór fram á það í lok mars 2011 að gripið yrði til ráðstafana og hafa íslensk stjórnvöld frest til 31. mars næstkomandi til að ljúka innleiðingu þeirra. Gangi það ekki eftir mun ESA undirbúa málshöfðun. Ákvörðun ESA var afsprengi áralangra samskipta stofnunarinnar og íslenskra stjórnvalda um tilhögun ríkisaðstoðar til Ríkisútvarpsins. Hún byggði á leiðbeinandi reglum ESA um tilhögun ríkisstyrkja til útvarpsþjónustu í almannaþágu sem fela í sér skýrari skil á milli almannaþjónustuútvarps og þess hluta starfsemi RÚV sem skilgreindur er sem samkeppnisrekstur. Fréttablaðið greindi frá því í gær að samkvæmt frumvarpsdrögunum er lagt til að RÚV muni stofna sérstakt dótturfélag utan um alla samkeppnisstarfsemi fyrirtækisins, þar á meðal sölu á auglýsingum. Rekstur þess félags mun lúta eftirliti Samkeppniseftirlitsins (SE), en RÚV gerir það ekki. Auk þess er lagt til að hlutfall auglýsinga í dagskrá RÚV fari ekki yfir 10 mínútur á klukkutíma, bannað verður að slíta í sundur dagskrárliði til að koma að auglýsingum, vöruinnsetning verður óheimil í innlendri dagskrárgerð og RÚV verður gert að birta gjaldskrá fyrir auglýsingar á vefnum þar sem einnig verða tilgreind sértilboð og önnur afsláttarkjör. Allar þessar breytingar eru í takt við kröfur ESA. - þsj
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira