Innlent

Vildu loka Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið.
Þjóðleikhúsið. fréttblaðið/valli
Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi gerðu það að tillögu sinni um það leyti sem fjárlagagerð stóð yfir haustið 2009 að loka ríkisreknum menningarstofnunum í sparnaðarskyni. Þjóðleikhúsið var nefnt sérstaklega á nafn og skyldi lokunin standa í þrjú ár. Tillögu AGS var alfarið hafnað.

Þetta kom fram í máli Katrínar Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, á Alþingi á föstudag þegar hún flutti munnlega skýrslu fyrir þinginu um málefni safna hér á landi. „Og þetta var nefnt í fullri alvöru," sagði Katrín.

Í viðtali við Fréttablaðið útskýrir ráðherra að þegar hugmyndin var orðuð við íslensk stjórnvöld hefðu fulltrúar AGS í sjálfu sér ekki gert sérstakan greinarmun á menningarstofnunum sem þeir töldu að mætti loka í þrjú ár í sparnaðarskyni.

„Þetta var meðal ýmissa hugmynda þeirra um niðurskurð og samdrátt, og nefnt sem fórn sem gæti þurft að færa," segir Katrín. „Almennt var það nefnt sem lausn að loka stofnunum tímabundið."

Að sögn Katrínar voru allar menningarstofnanir sem reknar eru af íslenska ríkinu undir í hugmyndinum AGS, til dæmis höfuðsöfnin Listasafn Íslands og Þjóðminjasafnið. Af hálfu íslenskra stjórnvalda hafi slíkar lokanir þó aldrei komið til greina.

Þessar hugmyndir AGS sýna vel hvers konar áskorun stjórnvöld stóðu frammi fyrir þegar niðurskurðarhnífurinn fór á loft eftir hrunið en Katrín nefnir að aðgerðir eins og þessar hefðu haft gríðarlega neikvæð áhrif á íslenskt samfélag, og öðruvísi væri yfir að líta hér á landi ef þessum hugmyndum AGS hefði verið gefinn frekari gaumur. Hugmyndunum hafi hins vegar verið hafnað samstundis og ekki ræddar sem möguleiki við aðhaldsaðgerðirnar sem þá gengu í garð.

Við Þjóðleikhúsið starfa milli 400 og 500 manns á hefðbundnu leikári. Í ársskýrslu leikhússins fyrir árið 2010 kemur fram að aðsókn jókst fimmta árið í röð; tæplega hundrað þúsund manns sóttu 24 sýningar.

Á fjárlögum ársins 2010 var fjárveiting til Þjóðleikhússins rúmlega 700 milljónir króna en 647 árið 2011. Á fjárlögum þessa árs eru milljónirnar 679. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×