Vilja breyta lögum um kynferðisbrot 31. janúar 2012 06:00 Fagráðið vill láta refsiréttarnefnd kanna hvort grundvöllur sé fyrir því að afnema fyrningarfrest í öllum alvarlegum kynferðisbrotamálum. fréttablaðið/Hari
Fela á refsiréttarnefnd að kanna hvort grundvöllur sé fyrir því að fyrningarfrestur í alvarlegum kynferðisbrotum verði afnuminn með öllu, samkvæmt tillögum í minnisblaði fagráðs innanríkisráðuneytisins um kynferðisbrot til Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra 16. janúar síðastliðinn. Fyrningarfrestur vegna alvarlegustu kynferðisbrotanna gegn börnum hefur nú þegar verið afnuminn. Róbert R. Spanó, formaður nefndarinnar, segir að hvort grundvöllur sé til að afnema fyrningarfrest í öðrum tilvikum alvarlegra kynferðisbrota verði metið af hálfu refsiréttarnefndar, ef og þegar slíkt erindi væri lagt fyrir hana. Refsiréttarnefnd er skipuð af innanríkisráðherra og semur hún meðal annars lagafrumvörp á sviði refsiréttar og gætir að því að samræmis sé gætt í setningu laga og reglna. Í minnisblaði fagráðsins til ráðherra segir einnig að nauðsynlegt sé að huga að því að einstaklingar með erfiða reynslu að baki í kynferðisbrotamálum fái aðstoð til að vinna úr áföllum sínum. „Í þessu samhengi þurfi sérstaklega að huga að stöðu einstaklinga sem hafa leitað til réttarkerfisins vegna kynferðisbrota en málin ekki fengið framgang vegna fyrningarfresta,“ segir í blaðinu. „Fagráð telur að vænlegt gæti verið að huga að ákvæðum laga um greiðslu bóta vegna ofbeldisbrota í þessu samhengi og þá sérstaklega hvort að unnt væri að kveða á um aðstoð í formi greiðslu sálfræðikostnaðar.“ Einnig er kveðið á um að þrátt fyrir ákvæði hegningar- og barnaverndarlaga virðist vera þörf á að styrkja lagalega umgjörð varðandi kynferðisbrot sem eiga sér stað innan skipulagðra samtaka á borð við trúfélög og æskulýðs- og íþróttafélaga. Fagráð innanríkisráðuneytisins var skipað í byrjun maí á síðasta ári með þeim tilgangi að vera innanríkisráðherra til ráðgjafar í málum er varða kynferðisbrot innan trúfélaga og félagasamtaka og leiðbeina honum um leiðir til úrbóta. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Erlent „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Innlent „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Erlent Stúlkan er fundin Innlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Innlent Fleiri fréttir Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vara við aðskotaefni í tei Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Vasaþjófar á ferð í miðborginni Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Hnakkrifust á bak við luktar dyr Stytting hringvegarins sú mesta á þessari öld Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Sjá meira