Állinn nær allt að fjörutíu ára aldri 23. janúar 2012 05:00 Kvörnin var brennd og brotin svo sést í sárið. Árin eru merkt með gulu en meðalvöxtur var aðeins 2 til 3 sentimetrar á ári. mynd/veiðimálastofnun
Rannsóknir Veiðimálastofnunar á bjartál í Elliðaánum sýna að áll sem elst upp á Íslandi getur náð háum aldri. Álar sem Veiðimálastofnun rannsakaði í göngu niður Elliðaárnar voru allt að 40 ára. Áll hrygnir í sjó, nánar tiltekið í Þanghafinu. Seiði þeirra synda með Golfstraumnum og berast að ströndum Evrópulanda, þar á meðal Íslands. Seiðin, sem þá eru kölluð gleráll, ganga svo upp í ferskvatn og alast þar upp. Nokkuð virðist ganga af glerál upp í Elliðaárnar og líklega fer mest af honum upp í Elliðavatn og dvelur þar fram að kynþroska. Þegar kynþroska er náð fer állinn í göngubúning líkt og laxfiskar sem eru á leið til sjávar. Verður hann þá ljósari yfirlitum og kallast bjartáll. Starfsmenn Veiðimálastofnunar rannsökuðu yfir 100 bjartála á tímabilinu 1999 til 2005 og skrásettu niðurgöngutíma, lengd, þyngd, kyn og aldur fiskanna. Kom þá í ljós að bjartáll á lengdarbilinu 53 til 103 sentimetrar var á aldursbilinu 13 til 40 ára gamall. Allur állinn sem kom niður Elliðaárnar voru hrygnur en talið er að hængarnir haldi sig neðar í vatnakerfum eða á strandsvæðum í sjó. Aðalgöngutími álsins er frá miðjum september til miðs nóvember. - shá
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Sjá meira