Innlent

Lestarsamgöngur verði ekki útilokaðar

Hjálmar Sveinsson
Hjálmar Sveinsson
Borgarráð Reykjavíkur lagði til á fundi sínum á fimmtudag að möguleikar á lestartengingu milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins verði tryggðir í aðalskipulagi Reykjavíkur og svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins.

„Þetta eru í raun tilmæli borgarráðs til skipulagssviðs og stýrihóps um aðalskipulag,“ segir Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi Samfylkingar og fulltrúi í umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkur.

„Málið snýst um að sveitarfélögin hagi sínu aðalskipulagi þannig að þau útiloki ekki lestarsamgöngur í framtíðinni. Það felst engin ákvörðun í þessu nema að sveitarfélögin haldi möguleikunum opnum.“

Hjálmar segir aðspurður að þessar hugmyndir séu hluti af framtíðarstefnumörkun fyrir flugvallarsvæðið í Vatnsmýri.

„Þess utan er þetta ein mikilvægasta samgönguleið landsins og umferð á bara eftir að aukast þar sem gert er ráð fyrir milljón ferðamönnum til landsins eftir tíu til fimmtán ár.“

Engar hugmyndir eru enn uppi um hvar slík spor gætu legið, en stefnt er að því að mynda starfshóp sveitarfélaganna um málið.

„Orð eru til alls fyrst,“ segir Hjálmar að lokum. „Þetta er viðleitni til að halda leiðum opnum og sjá til þess að ekkert gerist sem útilokar þennan möguleika.“

- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×