Sigraði í tveimur dansflokkum 19. nóvember 2012 00:01 Sigraði Leifur Eiríksson sigraði í tveimur flokkum í „street“ danskeppni sem fram fór á laugardag.Mynd/Einar Ingi Sigmundsson MYND/EINAR INGI SIGMUNDSSON
Leifur Eiríksson sigraði í tveimur dansflokkum í fyrsta „street“ danseinvíginu sem haldið hefur verið á Íslandi. Danskeppnin fór fram á laugardaginn fyrir viku og sigraði Leifur bæði í toprock og break-dansi. „Toprock er í raun standandi hluti break-dansins, allt sem dansarar gera áður en þeir fara í gólfið. Toprock gefur dönsurum færi á að sýna stílinn sinn án þess að þurfa að bæta fimleikum við dansinn. Þetta eru fyrstu break danssporin og mun eldra en allir fimleikarnir,“ útskýrir Leifur hefur æft break-dans frá árinu 2000 og var lengi meðlimur í danshópnum Fifth Element. Hann kveðst ekki hafa æft mikið fyrir keppnina og varði æfingatímanum í að dusta rykið af gömlum danssporum. „Ég tók nokkrar æfingar fyrir keppnina og fór yfir mína helstu styrkleika. Upphaflega ætlaði ég að keppa með hóp en einn úr hópnum slasaði sig tveimur dögum fyrir keppni þannig að við urðum að hætta við þau áform.“ Keppendur í break-dansi voru alls sextán og að sögn Leifs voru þeir allir mjög færir dansarar. Það stóð því tæpt á munum milli hans og annara í þeim flokki en hann sigraði nokkuð örugglega í toprock. „Það var mjótt á munum í breakinu. Þetta var rosaleg keyrsla og maður fékk bara um tvær mínútur í hvíld á milli dansa. Ég var gjörsamlega búinn á því í síðustu lotu og sigraði eiginlega á viljastyrknum einum saman,“ segir hann. Leifur starfar sem tónlistarmaður samhliða því sem hann leggur stund á dansinn. Hann hefur hug á að færa sig í auknum mæli yfir í dansinn aftur en segir það ekki framtíðarstarf. „Það er ekki hægt að hafa í sig og á með break-dansi en það er góð líkamsrækt og ágætar aukatekjur,“ segir hann að lokum.
Mest lesið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið Fleiri fréttir „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Sjá meira