Lífið

Hamingjusöm tvíburamamma

MYNDIR / COVER MEDIA
True Blood-pæjan Anna Paquin fékk sér göngutúr á Venice Beach á sunnudaginn og tók tvíburana sína með sem eru aðeins tveggja mánaða gamlir.

Anna var með tvíburana í burðarrúmi framan á sér og leit rosalega vel út. Þessi þrítugi Óskarsverðlaunahafi klæddist gallabuxum, gráum topp og svartri peysu og virtist ekkert muna um það að burðast með tvö börn.

Sér ekkert nema tvíburana sína.
Anna og eiginmaður hennar, Stephen Moyer, kynntust á setti True Blood og giftust árið 2010. Þau eignuðust tvíburana í september en þetta eru fyrstu börn Önnu. Stephen á hins vegar tvö börn úr fyrra sambandi, Lilac, tíu ára og Billy, tólf ára.

Anna og Stephen á deiti.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.