Krefjast frávísunar al-Thani málsins Jón Hákon Halldórsson skrifar 1. október 2012 09:37 Hörður Felix Harðarson ásamt fulltrúum annarra verjenda við fyrirtökuna í dag.
Verjendur Kaupþingsmanna í al-Thani málinu svokallaða kröfðust frávísunar við fyrirtöku í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Enginn sakborninganna var mættur í Héraðsdóm, en Hörður Felix Harðarson, verjandi Hreiðars Más Sigurðssonar, og fulltrúar hinna sakborninganna voru mættir til að leggja fram greinargerð í málinu. Björn Þorvaldsson saksóknari lagði í morgun fram ný gögn, annarsvegar afrit af sex símtölum úr borðsimum Kaupþings. Hins vegar nýjar þýðingar úr reglugerðarbók Kaupþings. Málflutningur um frávísunarkröfuna fer fram þann 29. október næstkomandi og Hörður Felix vildi ekkert segja um það á þessari stundu á hvaða forsendu frávísunarkrafan væri byggð. „Það verður bara að bíða þangað til málflutningurinn fer fram, þann 29. október," sagði Hörður Felix þegar hann var spurður nánar út í málið. al-Thani málið snýst um ákæru sérstaks saksóknara á hendur öllum helstu stjórnendum Kaupþings, þeim Sigurði Einarssyni stjórnarformanni, Hreiðari Má Sigurðssyni forstjóra, Magnúsi Guðmundssyni, forstjóra Kaupþings í Lúxemborg, og Ólafi Ólafssyni, einum aðaleiganda bankans. Þeir eru sakaðir um umboðssvik og markaðsmisnoktun með því að lána félögum í eigu al-Thanis fé í eigu bankans til þess að kaupa hlut í bankanum. Þannig hafi átt að láta líta út fyrir að raunveruleg viðskipti hafi átt sér stað með hlut í bankanum og þannig átti að halda hlutabréfaverði í honum uppi.
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Drengurinn kominn heim til sín Innlent Fleiri fréttir Bilun í Herjólfi Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Sjá meira