Lionel Messi er falur fyrir 42 milljarða kr. 25. desember 2012 13:00
Besti knattspyrnumaður veraldar verður 31 árs gamall þegar samningur hans við Barcelona rennur út árið 2018. Verðmiðinn á Argentínumanninum er klár ef eitthvað félag hefur áhuga. Hann er samt sem áður ekki tekjuhæsti knattspyrnumaður heims. Lionel Messi er að flestra mati besti knattspyrnumaður veraldar en hann hefur farið á kostum með spænska liðinu Barcelona á árinu 2012. Messi skrifaði á dögunum undir nýjan samning við Barcelona fram til ársins 2018 – en hann verður samt sem áður ekki launahæsti knattspyrnumaður heims. Messi var með samning við Barcelona sem átti að renna út í lok leiktíðar árið 2016. Hann framlengdi um tvö ár, líkt og fyrirliðinn Carles Puyol og Xavi, sem eru með samninga út árið 2016. Í samningnum er ákvæði sem Messi getur nýtt sér líki honum ekki dvölin hjá Barcelona. Hann getur óskað eftir því að fara frá félaginu ef eitthvað lið vill kaupa hann á 250 milljónir Evra eða sem nemur rétt tæplega 42 milljörðum ísl. kr. Toni Freixa, talsmaður Barcelona, sagði við fréttamenn þegar greint var frá samningi Messi að það væri ólíklegt að Messi væri tekjuhæsti fótboltamaður veraldar. Þetta er í fimmta sinn sem Messi skrifar undir nýjan samning við Barcelona frá því hann skrifaði undir fyrsta atvinnumannasamninginn árið 2005. Samkvæmt heimildum sænska dagblaðsins Aftonbladet hefur Messi verið með um 1,7 milljarða kr. í árslaun. Og nýr samningur tryggir honum um 2,7 milljarða kr. í árslaun en Messi verður 31 árs gamall þegar samningurinn rennur úr gildi. Messi á samt sem áður langt í land með að ná árslaunum fyrrum samherja síns hjá Barcelona, Samuel Eto'o. Kamerúnmaðurinn fær um 3,3 milljarða kr. á árslaun hjá rússneska liðinu Anzji. Fjölmörg fyrirtæki hafa gert samninga við Messi á undanförnum árum. Tekjur af þeim samningum eru ekki reiknaðar inn í árslaun hans. Messi er með samninga við Adidas, Pepsi og EA Sports. Talið er að Messi fái um 5,5 milljarða kr. í árslaun þegar allar tekjur hans eru teknar saman. Hinn 25 ára gamli Messi er nú þegar markahæsti leikmaður allra tíma hjá Barcelona en hann hefur skorað 90 mörk á þessu ári fyrir félagið.Launahæstu knattspyrnumenn veraldar: *tekjur af auglýsingasamningum er ekki reiknaðar með: 1. Samuel Eto'o (Kamerún) Félag: Anzhi, Rússland. Árslaun: 3,25 milljarðar kr. (15,91 milljónir punda).2. Zlatan Ibrahimovic (Svíþjóð). Félag: PSG, Frakkland. Árslaun 2,35 milljarðar kr. (11,54 milljónir punda).3. Wayne Rooney (England). Félag: Manchester United, England. Árslaun: 2,24 milljarðar kr. (10,98 milljónir punda).4. Yaya Toure (Fílabeinsströndin) Félag: Manchester City, England. Árslaun: 2,11 milljarðar kr. (10,34 milljónir punda).5. Sergio Aguero (Argentína). Félag: Manchester City, England. Árslaun: 2,03 milljarðar kr. (9,95 milljónir punda).6. Didier Drogba (Fílabeinsströndin). Félag: Shanghai, Kína. Árslaun: 1,95 milljarðar kr. (9,55 milljónir punda).7. Fernando Torres (Spánn). Félag:Chelsea, England. Árslaun: 1,75 milljarða kr. (8,6 milljónir punda).8. Darío Leonardo Conca (Argentína). Félag: Guangzhou, Kína. Árslaun: 1,71 milljarðar kr. (8.4 milljónir punda).9. Lionel Messi (Argentína) Félag: Barcelona, Spánn. Árslaun 1,7 milljarðar kr. (8,35 milljónir punda)10. Cristiano Ronaldo (Portúgal) Félag: Real Madrid, Spánn. Árslaun: 1,63 milljarðar kr. (7,98 milljónir punda). Beckham á toppnumÞegar allar tekjur knattspyrnumanna eru teknar með í dæmið trónir David Beckham á toppnum. Hinn 37 ára gamli Englendingur er með gríðarlega marga samninga við ýmis fyrirtæki og þaðan kemur meirihluti af tekjum hans. Tekjuhæstu knattspyrnumenn veraldar. tekjur af auglýsingasamningum eru reiknaðar með: David Beckham (England) Félag: LA Galaxy, Bandaríkin.Heildartekjur 2012: 5,8 milljarðar kr. Þar af eru 4,6 milljarðar kr. vegna auglýsingasamninga.Cristiano Ronaldo (Portúgal) Félag: Real Madrid, Spánn. Heildartekjur 2012: 5,33 milljarðar kr. Þar af eru 2,8 milljarðar kr. vegna auglýsingasamninga.Lionel Messi (Argentína) Félag: Barcelona, Spánn. Heildartekjur 2012: 4,88 milljarðar kr. Þar af eru 3,2 milljarðar kr. vegna auglýsingasamninga. Sharapova eina konan á listanumTenniskonan Maria Sharapova er sú eina sem kemst inn á topp 50 listann yfir tekjuhæstu íþróttamenn veraldar. Hin 25 ára gamla Sharapova „önglaði" saman rétt tæplega 3,5 milljörðum kr. á frá því í júní á síðasta ári og fram undir mitt ár 2012. Sharapova fékk um 740 milljónir kr. í verðlaunafé á tennismótum en hún fékk rétt um 2,8 milljarða kr. fyrir auglýsingasamninga. Sharapova er í 26. sæti á lista yfir tekjuhæstu íþróttamenn og konur veraldar árið 2012. Mayweather með tæplega 11 milljarða kr. fyrir tvo bardaga Hnefaleikakappinn Floyd Mayweather mætti tvisvar í „vinnuna" og fékk hinn 35 ára gamli Bandaríkjamaður um 10,7 milljarða kr. í sinn hlut. Mayweather mætti Victor Ortiz í boxhringnum og fyrir þann bardaga fékk hann rétt um 5 milljarða kr., og 5,7 milljarða fyrir bardagann gegn Miguel Cotto. Mayweather er eins og kjarnorkuúrgangur þegar kemur að samstarfssamningum við stórfyrirtæki . Ástæðan er einföld. Hann fékk þriggja mánaða fangelsisdóm vegna heimilisofbeldis.2. Manny Pacquaio (Filipseyjar) 33 ára, hnefaleikar: Heildartekjur 2012: 7,8 milljarðar kr.3. Tiger Woods (Bandaríkin) 36 ára, golf: Heildartekjur 2012: 7,44 milljarðar kr.4. LeBron James (Bandaríkin) 37 ára, NBA körfubolti: Heildartekjur 2012: 6,64 milljarðar kr.5. Roger Federer (Sviss) 30 ára, tennis: Heildartekjur 2012: 6,6 milljarðar kr.6. Kobe Bryant (Bandaríkin) 33 ára, NBA körfubolti: Heildartekjur 2012: 6,55 milljarðar kr.7. Phil Mickelson (Bandaríkin) 41 árs, golf: Heildartekjur 2012: 6 milljarðar kr.8. David Beckham (England) 37 ára, fótbolti: Heildartekjur 2012: 5,8 milljarðar kr.9. Cristiano Ronaldo (Portúgal) 27 ára, fótbolti: Heildartekjur 2012: 5,33 milljarðar kr.10. Peyton Manning (Portúgal) 36 ára, NFL deildini: Heildartekjur 2012: 5,31 milljarðar kr.
Fótbolti Mest lesið „Ég valdi bara bestu gelluna, hún gæti reyndar verið mamma mín“ Sport Tryggði sig á heimsleikana en endaði á sjúkrahúsi tveimur dögum síðar Sport Forsetinn gaf öllum nýja bíla Fótbolti „Stress og spenningur að flytja einn út og þurfa læra á uppþvottavél“ Handbolti Mömmu þjálfarans fannst framkoma Bellingham viðbjóðsleg Fótbolti Fyrrum methafi lést aðeins 28 ára Sport Draumur Cunha rættist Enski boltinn Tannlæknir keppir á opna bandaríska Golf Funduðu á eyju um kaup Arsenal á Gyökeres Enski boltinn Óvænt stjarna með súperinnkomu af bekknum þegar Pacers komst í 2-1 Körfubolti Fleiri fréttir Borga fimm milljarða fyrir táning Ekki spilað á Þjóðhátíð og meistararnir á heimavelli Blikar hentu nágrönnunum út og gripu síðasta farseðilinn Man. Utd með í slaginn um Ekitike Daninn orðinn stjóri Tottenham Flug FH heldur áfram inn í undanúrslit Funduðu á eyju um kaup Arsenal á Gyökeres Bíða eftir gúmmíi og spila á Þórsvelli eins og stelpurnar Freyr missir stjörnuleikmann í marga mánuði Draumur Cunha rættist Lindex-mótið á dagskrá í kvöld Morata og fjölskylda hans fékk morðhótanir Sané mættur til Tyrklands Mótherjar Íslands urðu fyrir áfalli rétt fyrir EM Forsetinn gaf öllum nýja bíla Bað þjóðina um að fyrirgefa þeim Íslensku konurnar niður um eitt sæti á FIFA-listanum Pólski þjálfarinn segir af sér eftir deilurnar við Lewandowski Alexander-Arnold kominn með númer Sú markahæsta frá upphafi „með hreina samvisku“ Mömmu þjálfarans fannst framkoma Bellingham viðbjóðsleg Sané fær ofurlaun hjá Galatasaray Leverkusen vill varnarmann Liverpool Grealish fer ekki með á HM félagsliða Uppgjörið: Valur - Þróttur 2-1 | Valskonur í undanúrslit Þróttur fékk kröftugan framherja sem þarf að bíða fram að stórleiknum Breiðablik búið að semja við Damir Skaut fast á umboðsmann Gyökeres: „Hótanir og kúgun virka ekki á mig“ „Auðvitað þyrstir okkur í sigur sem fyrst“ „Óhjákvæmilegt að maður brjóti hjarta einhvers“ Sjá meira