Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Sindri Sverrisson skrifar 23. desember 2025 22:44 Brooks Koepka er hættur á LIV-mótaröðinni. Getty/Luke Walter Bandaríski kylfingurinn Brooks Koepka, sem unnið hefur fimm risamót á ferlinum, hefur ákveðið að yfirgefa LIV-mótaröðina og er þar með fyrsta stjarnan sem kveður þessa umdeildu mótaröð. Ekki liggur fyrir hvort það þýði að hann snúi aftur á PGA-mótaröðina.
Koepka samdi um að spila á hinni sádiarabísku LIV-mótaröð árið 2022 og átti enn eftir eitt ár af samningi. Hann gaf það hins vegar út í dag að hann myndi ekki spila á mótaröðinni árið 2026 og segist í tilkynningu hafa fengið samþykki fyrir því. Koepka segir að ákvörðunin sé tekin í góðu og að hann vilji geta varið meiri tíma heima með fjölskyldu sinni. Eiginkona hans, Jena, missti fóstur fyrr á þessu ári eins og hún greindi frá á Instagram. Koepka, sem er 35 ára gamall, vann fjögur risamót á árunum 2017-19 og svo það fimmta árið 2023 eftir að hafa skipt yfir til LIV. Hann átti hins vegar erfitt keppnistímabil í ár og komst ekki í gegnum niðurskurðinn á þremur af fjórum risamótanna auk þess sem hann landaði ekki sigri á neinu af LIV-mótunum. Raunar endaði hann aðeins tvívegis á meðal tíu efstu og samtals í 31. sæti af 54 kylfingum mótaraðarinnar.
Golf LIV-mótaröðin Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira