Innlent

Heitavatnslaust í Fossvogi og nágrenni í dag

Heitavatnslaust verður frá kl. 9:00 í dag í Fossvogi og nágrenni vegna viðgerðar á heitavatnslögn. Vonast er til að viðgerð verði lokið uppúr kl. 19:00 í kvöld. Dragist viðgerð mun Orkuveitan senda út tilkynningu þar að lútandi og birta á heimasíðu sinni.

Í tilkynningu segir að svæðið sem verður heitavatnslaust afmarkast af byggð neðan Bústaðavegar frá Reykjanesbraut að Borgarspítala og íbúðabyggð neðan Sléttuvegar að Kringlumýrarbraut. Þá verður einnig heitavatnslaust í Ásgarði, raðhúsum við Tunguveg, Stjörnu- og Blesugrófinni í Reykjavík sem og húsum sem standa við Fossvogsbrún í Kópavogi og í hverfinu við Lund í Kópavogi.

Íbúum er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að forðast slysahættu og tjón þegar vatnið kemst á að nýju. Þá er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að minnka varmatap.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×