Áfengissala í janúar svipuð og 2006 Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. febrúar 2012 10:55 Áfengissala hefur dregist verulega saman síðustu þrjú árin. Hún er hins vegar svipuð og hún var 2006.
Sala á áfengi dróst saman um 2,3% í janúar síðastliðnum miðað við sama tímabil í fyrra. Alls seldust 1.074.000 lítrar í mánuðinum og er munurinn 25 þúsund lítrar. Samdráttur í sölu er talsvert meiri í bjór en léttvínum, eftir því sem fram kemur á vef Vínbúðanna. Þannig dróst sala á bjór saman um 3% á meðan sala á rauðvíni og hvítvíni dróst saman minna um minna en 1%. Ef litið er lengra aftur í tímann og salan í janúar í ár borin saman við söluna fyrir tveimur árum, þá seldust tæplega 8% færri lítrar af áfengi í ár. Salan nú er aftur á móti svipuð, í lítrum talið og hún var árið 2006, Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri Vínbúðanna, segir enga skýringu vera á þessum samdrætti, en ljóst sé að verulegur samdráttur hafi verið í áfengissölu. Sé horft til sölu á ársgrundvelli sé ljóst að salan hafi dregist mikið saman undanfarin þrjú ár. Um 5% samdráttur hafi orðið á milli áranna 2009 - 2010. Samdráttur á milli áranna 2010-2011 hafi verið 2-3%. „Þannig að í raun og veru er þetta búið að vera að dragast mikið saman," segir Sigrún, en tekur jafnframt skýrt fram að það sé ekki markmið Vínbúðanna að selja sem mest. Tölurnar séu teknar saman til upplýsinga. Þegar horft er á sölu áfengis í janúar á árunum 2006 til 2012 sést að salan er álíka mikil í ár og hún var árið 2006. Hún fór stigvaxandi til ársins 2009, en það ár voru seldar 1.284 þúsund lítrar áfengis. Síðan þá hefur salan minnkað jafnt og þétt og nú í janúar voru seldir um 200 þúsund færri lítrar en þá.
Mest lesið Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Innlent Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Erlent Staðfesta að samkomulag hafi náðst: Íran fagnar og segir Trump hafa gefist upp Erlent Vopnað rán í Reykjavík Innlent Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Innlent Lét Netanjahú heyra það í símtali þeirra: „Ég varð svo brjálaður“ Erlent Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent Segir upptöku evrunnar geta leitt til aukins atvinnuleysis Innlent Tólf fórust þegar flugvél hrapaði í Missouri Erlent Dramatík í tveimur þáttum: Gervigreindarbóla og óður um yfirráð Erlent Fleiri fréttir Þingmenn á síðustu metrunum Vopnað rán í Reykjavík Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Segir upptöku evrunnar geta leitt til aukins atvinnuleysis Óskiljanlegt að ráðuneytið skoði bara stöðu námsgagna í stærðfræði Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Árekstur á Kársnesi Laus úr sjálfheldu eftir um fimm tíma strand Vill samfélagssáttmála vegna tómstundaiðkunar barna Hákarlaárás og fyrrverandi varaformaður Viðreisnar vonsvikinn Um 400 skjálftar hafa mælst í þéttri hrinu Sagnfræðirannsóknir, upptaka evru, menntakerfið og málefni barna Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar Sjá meira
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent