Segir ærumissi ekki skýra meiðyrðamál 8. febrúar 2012 06:45 Gestur Jónsson afhenti Jóni Finnbjörnssyni dómara gögn áður en málflutningur lögmanna í meiðyrðamálinu hófst í gær. Fréttablaðið/GVA
Meiðyrðamál Jóns Ásgeirs Jóhannessonar gegn Birni Bjarnasyni er tilraun til að koma höggi á Björn að mati verjanda hans. Alvarleg ærumeiðing að segja Jón Ásgeir dæmdan fyrir fjárdrátt en ekki bókhaldsbrot segir lögmaður hans. Það er einsdæmi að höfðað sé meiðyrðamál á hendur manni sem vill leiðrétta allt sem hefur verið missagt, og ljóst að annað en meidd æra liggur að baki meiðyrðamáli sem Jón Ásgeir Jóhannesson hefur höfðað á hendur Birni Bjarnasyni, segir Jón Magnússon, verjandi Björns. Meiðyrðamálið var höfðað vegna rangfærslna í bók Björns, Rosabaugur yfir Íslandi. Í bókinni var meðal annars ranglega sagt að Jón Ásgeir hefði verið sakfelldur fyrir fjárdrátt í Baugsmálinu, þegar hið rétta er að hann var sakfelldur fyrir meiri háttar bókhaldsbrot. Aðalmeðferð í málinu fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Björn leiðrétti rangfærslurnar í annarri prentun bókarinnar, í aðsendri grein í Morgunblaðinu og á vef sínum, og bað Jón Ásgeir afsökunar á ummælunum, sagði Jón Magnússon í dómsal í gær. „Þetta er eitt sérkennilegasta meiðyrðamál sem höfðað hefur verið á Íslandi,“ sagði Jón. Hann sagði augljóst að enginn ásetningur hafi verið hjá Birni að meiða æru Jóns Ásgeirs og erfitt að sjá hverju meiðyrðamál eigi að skila. Jón sagði að ekki þyrfti að gera annað en að lesa bókina í heild sinni til að sjá að rétt sé farið með allt sem máli skipti. Málið sé tilraun til að koma höggi á Björn, og hafi ekkert með æru að gera. Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs, sagði vart hægt að deila um að með því að fullyrða að Jón Ásgeir hafi verið dæmdur fyrir fjárdrátt en ekki bókhaldsbrot hafi æra hans verið meidd. Þrátt fyrir að Björn hafi leitast við að leiðrétta rangfærslurnar gerði hann það aðeins að hluta, sagði Gestur. Í annarri prentun bókarinnar segi enn að Jón Ásgeir hafi verið sakaður um fjárdrátt í ákærulið þar sem hann hafi ekki verið ákærður, og sakfelldur fyrir þann ákærulið. „Þessi ummæli sem krafist er ómerkingar á eru röng og meiðandi, og fela í sér aðdróttanir,“ sagði Gestur í dómsal í gær. Um það breyti afsökunarbeiðni í skötulíki engu, enda verði ærumeiðing ekki refsilaus þó að gerandinn iðrist. Gestur sagði að horfa verði til þess að Björn sé löglærður maður og hafi starfað sem dómsmálaráðherra stærstan hluta þess tíma sem Baugsmálið var rekið hjá lögreglu og fyrir dómstólum. Til þess verði að líta við ákvörðun refsingu. Jón Ásgeir krefst einnar milljónar króna í miskabætur af Birni og 300 þúsunda að auki til að kosta birtingu dómsins. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Tveir ferðamenn fundust látnir á Edition Innlent Frönsk kona grunuð um að bana dóttur sinni og eiginmanni Innlent Rannsaka „alvarlegt atvik“ á Edition Innlent Sigfús Aðalsteinsson: Trömpistinn sem vill bjarga Íslandi Innlent Tveir ríkisþingmenn skotnir á heimilum sínum Erlent Sinueldur kviknaði út frá brennandi rusli: „Erum pínulítið pirraðir á þessu“ Innlent Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Innlent Flúði á brott eftir alvarlega líkamsárás Innlent Segir Íran hafa farið yfir strikið Erlent Spáir því að Fljótagöng verði næstu jarðgöng Innlent Fleiri fréttir Segir landráðskæru fráleita: „Þetta er mjög hættuleg þróun fyrir íslenskt samfélag“ Hin grunaða með stunguáverka og blindflug án samræmds námsmats Frönsk kona grunuð um að bana dóttur sinni og eiginmanni Sinueldur kviknaði út frá brennandi rusli: „Erum pínulítið pirraðir á þessu“ Tveir ferðamenn fundust látnir á Edition Meirihlutinn spari mínútur til að kasta klukkutímum á glæ Alvarlegt atvik á Edition og veiðigjaldafrumvarpið afgreitt úr nefnd Rannsaka „alvarlegt atvik“ á Edition Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Sigfús Aðalsteinsson: Trömpistinn sem vill bjarga Íslandi Bókun 35 aftur rædd fram á nótt Spáir því að Fljótagöng verði næstu jarðgöng Flúði á brott eftir alvarlega líkamsárás Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Benz brann í Breiðholti Minnihlutinn mætir ekki á morgun Vilja milljarð frá First Water sem hafnar vanefndum Allt á suðupunkti á Alþingi, árásir í Íran og fágætur flygill Selma nýr skólameistari á Króknum Hafa enga hugmynd hve lengi segulómstækið verður ónothæft Þórdís kemur Þorgerði til varnar: „Birtingarmynd pólitískra öfga“ Skúringatæki pikkfast utan á eina segulómtækinu á Hringbraut Stofnandi Viðreisnar segir Daða seilast í vasa almennings Burðardýr með þrettán kíló í farangrinum hlaut þungan dóm Sverrir Jónsson ráðinn skrifstofustjóri Alþingis Þyrlan afturkölluð og hinn slasaði sóttur á björgunarskipi Draga úr framkvæmdum um meira en fjórðung vegna rekstrarstöðvunar PCC Kæra utanríkisráðherra fyrir landráð Segja skellt á Skattinn og að „ofbeldi“ viðgangist í nefndinni Sjá meira