Verið að klára samninga vegna myndar Baltasars og Denzels Þorbjörn Þórðarson skrifar 8. febrúar 2012 12:13
Bandaríski stórleikarinn Denzel Washington, sem er tvöfaldur óskarsverðlaunahafi, hefur samþykkt að leika í nýjustu kvikmynd Baltasars Kormáks, 2 Guns. 2 Guns er framleidd af Marc Platt Productions sem hefur m.a gert kvikmyndirnar Drive og Wanted, sem skartaði Angelinu Jolie í aðallhlutverki. Um er að ræða umtalsvert stærra verkefni en Contraband og er framleiðslukostnaður áætlaður 80 milljónir dollara, jafnvirði tæplega tíu milljarða króna. Þetta er önnur myndin þar sem Baltasar leikstýrir Mark Wahlberg, en Contraband, fyrsta myndin sem þeir gerðu saman hefur átt mikilli velgengni að fagna og átti stærstu opnun á frumsýningarhelgi í sögu framleiðandans Working Title Films og hefur þegar halað inn jafnvirði um níu milljarða króna. Hún hefur þegar skilað nokkrum hagnaði, en upphaflegur framleiðsluskostnaður myndarinnar var 25 milljónir dollara, jafnvirði um þriggja milljarða króna. 2 Guns er eins og framan greinir ennþá stærra verkefni en Contraband og nú hefur bandaríski stórleikarinn Denzel Washington, tvöfaldur óskarsverðlaunahafi, samþykkt að leika í myndinni við hlið Wahlbergs. „Þetta lítur mjög vel út, en ég er mikill aðdaándi, mér finnst hann frábær leikari. Það er verið að reka smiðshöggið á þetta og loka þessum samningum, þannig að þetta lítur vel út," segir Baltasar. Washington fékk handritið að 2 Guns sent til sín og leist vel á. „Svo var Contraband „screenuð" sérstaklega fyrir hann, sér bíó fyrir hann, svo sagðist hann vilja hitta mig, en áður var búið að vinna í tilboðinu fyrir hann. Síðan áttum við fund, en ég fór út til Los Angeles og við áttum tveggja tíma fund. Hann stóð síðan upp eftir fundinn og sagðist vilja gera þetta með mér. Hann er helvíti svalur náungi og það var gaman að spjalla við hann," segir Baltasar. 2 Guns fjallar um fíkniefnalögreglumann og sjóliðsforingja sem fara huldu höfði þegar þeir rannsaka hvor annan í tengslum við þjófnað frá mafíunni og komast síðan að því að mafían hefur leitt þá í gildru. Baltasar segir að stefnt sé að því að tökur hefjist í júní næstkomandi.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira