Reykjanesbrautin nú ein öruggasta leiðin 8. febrúar 2012 04:00 Við Fáskrúðsfjarðargöng Stóraukið umferðaröryggi fékkst með opnun Fáskrúðsfjarðarganga. Þrátt fyrir það er leiðin milli Stöðvarfjarðar og Neskaupstaðar hættulegri en flestar. fréttablaðið/gva
Hættulegasti vegur landsins er leiðin milli Neskaupstaðar og Stöðvarfjarðar sem meðal annars liggur í gegnum Oddskarð. Þetta kemur fram í rannsókn sem birtist í Læknablaðinu nýverið. Það voru þeir Þóroddur Bjarnason félagsfræðingur og Sveinn Arnarson félagsfræðinemi sem framkvæmdu rannsóknina. Niðurstöðurnar eru athyglisverðar, ekki síst vegna þess að Reykjanesbrautin á milli Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar er ein öruggasta leiðin á Íslandi. Fræðimennirnir reiknuðu út að miðað við milljón ekna kílómetra væru fæst slys á Reykjanesbrautinni, en aftur á móti kemur fram að flest slys verða þar. Munurinn er hins vegar sá að miðað við umferðina er vegurinn nokkuð öruggur. Tímabilið sem var skoðað var frá 2007 til 2010. Fram kemur að hættulegasti vegarkaflinn utan þéttbýlis er leiðin milli Neskaupstaðar og Stöðvarfjarðar um Oddsskarð og Fáskrúðsfjarðargöng. Í öðru sæti var vegurinn frá Hellissandi að Stykkishólmi en vegurinn frá Þingeyri til Súðavíkur um Gemlufallsheiði og Vestfjarðagöng í þriðja sæti. Í fjórða sæti var kaflinn frá Seyðisfirði til Reyðarfjarðar um Fjarðarheiði og Fagradal. Vegurinn milli Jökulsárlóns og Skaftafells er sá öruggasti á landinu, miðað við sömu forsendur. Þannig segir í greininni að sé litið á umferðaröryggi út frá forsendum lýðheilsu er brýnast að draga úr fjölda slysa á Reykjanesbraut, Suðurlandsvegi allt að Hvolsvelli og Vesturlandsvegi norður yfir heiðar til Akureyrar, og helstu vegum á Mið-Austurlandi. - vg, shá
Mest lesið Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Artemis II er á heimleið Erlent Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Erlent Fleiri fréttir Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Sjá meira