Mahalia Jackson fastur hluti aðventunnar 29. nóvember 2012 11:51
Esther Jökulsdóttir og hljómsveit flytja jóla- og gospellög í Egilsstaðakirkju og Fríkirkjunni í Reykjavík. Söngkonan Esther Jökulsdóttir syngur jólalögin af sígildri plötu Mahaliu Jackson á tónleikum í Egilsstaðakirkju í kvöld. Þetta er sjötta árið í röð sem Esther flytur jóla- og gospellög að hætti Mahaliu, en í fyrsta sinn sem hún fer með prógrammið austur. "Ég er alin upp á Héraði og þykir mjög gaman að fara loksins heim með þetta prógramm sem er mér mjög hjartfólgið," segir Esther. Ástæða þess hve mikið Esther heldur upp á lög Jackson er sú að á hennar æskuheimili var platan með Mahaliu Jackson, Silent Night, sett á fóninn á aðfangadagskvöld þegar jólin gengu í garð. "Þegar tónar plötunnar bárust um húsið þá voru jólin byrjuð," segir Esther og bætir við að það hafi blundað í henni í mörg ár að syngja lögin áður en hún lét slag standa. "Ég fékk svo úrvalsfólk í lið með mér og þetta hafa alltaf verið dásamlegir tónleikar, það má segja að þeir séu orðnir að hefð hjá mér," segir Esther sem flytur prógrammið í Fríkirkjunni í Reykjavík þann 13. desember klukkan átta. Auk hennar koma fram Bjarni Arason sem er gestasöngvari, karlakvartett skipaður þeim Benedikt Ingólfssyni bassa, Einari Clausen og Skarphéðni Hjartarsyni og Erni Arnarsyni tenórum, og hljómlistarmennirnir Aðalheiður Þorsteinsdóttir, sem leikur á píanó, á trommum er Erik Qvick, Gunnar Gunnarsson leikur á Hammondorgel og Gunnar Hrafnsson á kontrabassa. Útsetningar laganna eru unnar af Aðalheiði og Skarphéðni.
Mest lesið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið Fleiri fréttir Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Sjá meira