Innlent

Útlit fyrir aukinn viðbúnað á Þjóðhátíð

Að minnsta kosti fimm konur greindu frá því að þeim hafði verið nauðgað á síðustu Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
Að minnsta kosti fimm konur greindu frá því að þeim hafði verið nauðgað á síðustu Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
Útlit er fyrir að viðbúnaður og gæsla verði aukin fyrir næstu Þjóðhátíð í Eyjum í ljósi þess að að minnsta kosti fimm konur tilkynntu um nauðgun þar á síðasta ári.

Hundrað karlmenn sendu bæjarstjóranum í Vestmannaeyjum, sýslumanninum og framkvæmdastjóra íþróttafélagsins ÍBV bréf nýverið þar sem nauðganirnar eru fordæmdar og lagðar eru fram spurningar um viðbrögð yfirvalda varðandi næstu Þjóðhátíð. Meðal annars er spurt hvort hún verði haldin, í ljósi fregna af þessum mikla fjölda nauðgana.

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, sendi svar við bréfinu ásamt öllum bæjarfulltrúum í Eyjum. Þar segir meðal annars að veitt verði heimild til að hátíðin verði haldin í ár, en „vegna atvika sem hafa komið upp hafa forvarnir verið til sérstakrar skoðunar og þar er markmið Vestmannaeyjabæjar að koma í veg fyrir þann harmleik sem hvert og eitt brot er“.

Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, segir það hafa komið til tals að gerðar verði auknar kröfur á samkomuhaldara um lýsingu á dimmum svæðum, uppsetningu eftirlitsmyndavéla og aukna gæslu almennt. Er þetta lagt fram með tilliti til þess sem gerðist á síðustu hátíð. Þá segir Karl Gauti lögregluna í Eyjum fordæma allar nauðganir, hvar sem þær séu framdar.- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×