Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu 12. febrúar 2012 10:45 Bergur Þór Ingólfsson, leikstjóri sýningarinnar. „
Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel," segir leikarinn og leikstjórinn Bergur Þór Ingólfsson sem leikstýrir leiksýningunni Galdrakarlinn í Oz sem er sýnd í Borgarleikhúsinu. Bergur Þór var fyrir tilviljun staddur á meðal áhorfenda þegar 48. sýningin var flutt á sviði Borgarleikhússins í gærdag. Um miðja sýningu sá Bergur Þór hinsvegar hvernig huglausa ljónið hljóp inn á sviðið og hvarf svo skyndilega. Í ljós kom að leikarinn Halldór Gylfason, sem leikur huglausa ljónið, féll niður hlera sem opnaðist fyrir slysni. Fallið var talsvert. Halldór datt niður á lyftu og féll þaðan niður á gólfið. „Tjaldið var þá strax dregið fyrir og ég hljóp upp á sviðið til þess að athuga með Dóra," segir Bergur sem var jafn brugðið og öðrum í húsinu, enda getur það verið stórhættulegt að falla niður svona hlera. Bergur kom að Halldóri sem kenndi sér nokkurra eymsla. „Og þetta er svo furðulegt með leikara, það fyrsta sem Dóri sagði var, ferð þú ekki bara í búninginn?" Kallað var á sjúkrabíl sem keyrði Halldór upp á spítala. Áhorfendur fengu sér sæti á ný og biðu þess í ofvæni að heyra hver örlög ljónsins væru. Bergur var þá enn fyrir neðan sviðið. Hann tók sig til og klæddi sig í búninginn. Svo kastaði hann ljónsmakkanum upp úr hleranum og mikill fögnuður braust út á meðal áhorfenda. Jafnvel léttir. Bergur fylgdi svo á eftir og útskýrði fyrir áhorfendum hvað hefði gerst og að hann myndi klára sýninguna sem huglausa ljónið. Það er alveg ljóst að sýningin er mikið sjónarspil og ákaflega tæknileg. Bergur segir að þetta sé fyrsta óhappið á sýningunni, sem hann telur hálfgert afrek. Bergur mun svo líklega leika huglausa ljónið aftur í dag, þegar 49. sýningin fer fram.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Fleiri fréttir Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Sjá meira