Þakhýsi dæmt niður en komið upp aftur 20. febrúar 2012 08:00 Hjónin í Suðurhúsum 2 fengu því áorkað með atbeina Hæstaréttar að þakhýsi nágranna þeirra var tekið niður. Nú er það komið upp aftur og blasir við þeim út um borðstofugluggann.Fréttablaðið/GVA „
Það þarf ekki síst að vekja athygli á þessum yfirgangi hjá borginni,“ segir Arngunnur R. Jónsdóttir, sem enn á ný glímir við þakhýsi sem nágrannar höfðu áður fjarlægt eftir dóm Hæstaréttar en hafa nú sett upp aftur í kjölfar breytinga á deiliskipulagi í Húsahverfi í Grafarvogi. Eigendur Suðurhúsa 4 komu fyrir viðbyggingu á þaki húss síns í ágúst 2006. Borgin hafði gefið út byggingarleyfi án þess að sinna því að setja framkvæmdina í grenndarkynningu. Því gafst nágrönnum ekki tækifæri til að gera athugasemdir við þakhýsið. Í ljós kom að viðbyggingin var í andstöðu við þágildandi deiliskipulag. Eigendur Suðurhúsa 4 létu því hífa bygginguna af húsi sínu í desember 2008. „Það gengu aldrei frá þakinu að fullu – eins og þau gerðu ráð fyrir að viðbyggingin kæmi aftur á sama stað. Síðan fór borgin í að breyta deiliskipulaginu í hverfinu. Í því fólst að þau gætu sett þakhýsið upp aftur,“ segir Arngunnur og undirstrikar að við deiliskipulagsbreytinguna hafi eingöngu verið horft til aukins fermetrafjölda en ekki til þess hvort byggt væri upp eða til hliðar eða hvernig götumyndin yfirleitt ætti að vera. Um miðjan ágúst í fyrra var þakhýsið komið upp að nýju. Arngunnur og maður hennar kærðu til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála sem ekki varð við kröfu þeirra um að ógilda nýja deiliskipulagið. Nefndin sagði gamla skipulagið aldrei hafa verið virt sem skyldi. Áhrifin gagnvart Suðurhúsum 2 væru ekki slík að leitt gæti til ógildingar. Arngunnur segir lögfræðing sinn á annarri skoðun. Í lögunum sé skýrt að ekki megi breyta skipulagi til samræmis við þegar gerðar framkvæmdir sem ekki hafi uppfyllt lagaskilyrði. Málið er nú aftur komið til dómstóla. „Þessi bygging er einfaldlega að eyðileggja fyrir okkur,“ segir Arngunnur. „Hún tekur af okkur sól og útsýni og það eru gluggar á þessum turni sem snúa beint út að stofunni hjá okkur svo þaðan er útsýni inn til okkar.“ Ekki hvað síst segist Arngunnur ósátt við hlut Reykjavíkurborgar sem í engu hafi tekið tillit til hagsmuna þeirra hjóna. Málavextina rekur hún nánar í grein sem bíður birtingar í Fréttablaðinu. „Það þarf að varpa ljósi á það gegndarlausa ofríki sem viðgengist hefur í borginni af hálfu skipulagsyfirvalda,“ segir meðal annars í greininni. gar@frettabladid.is
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Sjá meira