Innlent

Rannsókn gengur vel og lýkur í vikunni

Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillzeneger.
Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillzeneger. mynd úr safni
Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á tveimur nauðgunarkærum á hendur Agli Einarssyni, betur þekktum sem Gillzenegger, miðar vel og verður að öllum líkindum send til ákærusviðs lögreglunnar á næstu dögum. Þetta segir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar í samtali við fréttastofu. Kærurnar verða svo sendar saman til ríkissaksóknara sem tekur ákvörðun um hvort að ákært verði í málinu. Egill var kærður ásamt unnustu sinni í lok nóvember í fyrra fyrir nauðgun á heimili þeirra í Kópavogi. Hann var svo aftur kærður fyrir nauðgun í janúar á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×