Stefnan samhengislaus 20. febrúar 2012 13:37 Gunnlaugur M. Sigmundsson og Teitur Atlason. mynd/vísir
Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður Teits Atlasonar bloggara, sagði í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun að í staðinn fyrir að reyna ná sáttum í meiðyrðamáli sem Gunnlaugur M. Sigmundsson höfðaði gegn bloggaranum hefði Gunnlaugur frekar ákveðið að senda honum nafnlaus SMS. Lögmaður Gunnlaugs sagði SMS-skilaboðin hafa verið saklaus og að þau ættu ekkert erindi í málflutning málsins. Tekist var á um frávísunarkröfu á nokkrum atriðum sem Gunnlaugur og eiginkona hans bættu við stefnuna þegar málið var tekið fyrir. Gunnlaugur fór í mál við Teit eftir að hann bloggaði um Kögunarmálið svokallaða en hann byggði skrif sín á umfjöllun Morgunblaðsins á sínum tíma. Það var róleg stemming fyrir utan sal númer 301 í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Á meðan nokkrir blaðaljósmyndarar og blaðamenn biðu eftir að Teitur og Gunnlaugur kæmu í hús spjallaði lögmaður Teits við ljósmyndara og blaðamenn. Teitur og Gunnlaugur létu hvorugir sjá sig og því voru einungis lögmennirnir tveir, dómari og blaðamaður sem voru viðstaddir málflutninginn. Sigríður Rut, lögmaður Teits, sagði að þessi viðbót við stefnuna væri samhengislaus og væri byggð á vanreifun. Hún sagði að stefnan væri samtöl við aðra en Teit. „Málatilbúnaðurinn er ruglingslegur og ekki er hægt að átta sig á hvað er verið að stefna fyrir." Hún benti á að í framhaldsstefnunni væru einungis 5 af 30 málsgreinum sem halda mætti fram með góðu að fjalli um dómskröfur í málinu. Hún sagði að í 25 málsgreinum væri fjallað um allt aðra menn og þeirra innlegg í opinbera umræðu í þjóðfélaginu og að dómstólar væru ekki vettvangur fyrir slíkt. Á meðal þess sem væri fjallað um í stefnunni væru pistlar frá Bubba Morthens og leiðari í DV. „Reyni Traustasyni er ekki stefnt í þessu máli," sagði hún. Málið myndi fjalla um rétt Teits til að segja hluti á bloggsíðu sinni. Þá sagði hún það yrði mikill kostnaðarauki fyrir Teit jafnvel þótt hann myndi vinna málið. Hann væri efnalítill kennari og það yrði honum mjög þungbært að þurfa að borga fleiri hundruð þúsund krónur vegna málsins. Lögmaður Gunnlaugsson sagði að það sem myndi gera þetta mál sérstakt væri að eftir að það var höfðað þá hafi byrjað nýr kafli í því. „Þá er bara gefið hressilega í," sagði hann og átti þá við frekari umfjöllun Teits um Kögunarmálið á bloggsíðu sinni. Þá vék hann að því verjandi Teits hefði gert mikið úr fátækt Teits. Hann sagðist gefa sér að Teitur væri í millistétt og máli sínu til stuðnings benti hann á að eiginkona hans væri læknir. Hann sagðist halda að Teitur væri fullorðinn karlmaður sem ætti að standa uppréttur. Þá sagði hann að ástæða þess að í stefnunni væri vísað í greinar eftir aðra en Teit væri sú að skýra umræðuna sem hefði byrjað eftir skrif Teits. Þar vísaði hann í dóma Hæstaréttar þar sem segði að alltaf ætti skoða umfjöllun í heild sinni þegar tekin væri ákvörðun um frávísun. Hann sagði að með framhaldsstefnunni væri verið að reyna bregðast við níðing á netinu og að málsóknin hefði nú þegar skilað einhverjum árangri, og vísaði þar í viðtal við Teit í DV nýlega þar sem hann sagðist vera orðinn varkárari í bloggfærslum sínum. Hann svaraði gagnrýni verjanda Teits um að stefnan væri löng á þann veg að það væri Teiti sjálfum að kenna. „Ef Teitur væri með 1000 orð af einhverjum sóðaskap þá væri stefnan svo löng," sagði hann. Teitur Atlason fékk nafnlaus SMS frá Gunnlaugi nýlega og sagði lögmaður hans að það mætti sóða alla út á netinu en annað mál væri um saklaus SMS. Þá væri bara kært til lögreglu. Hann sagði að skilaboðin ættu ekkert erindi í dómsal og það hefði verið Teitur sjálfur sem hefði kosið að gera þá umræðu opinbera. Ef að SMS-kæran fer fyrir dómstóla sagði verjandi Gunnlaugs: „Þar mun hann standa í lappirnar eins og fullorðinn maður.
Mest lesið „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Innlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Innlent Segir upphaf hvalvertíðar vera gleðitíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“ Innlent Helmingur óánægður hefði Hildur valið Miðflokkinn Innlent Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Innlent Fleiri fréttir „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Íris Edda ráðin sveitarstjóri á Vopnafirði Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Segir upphaf hvalvertíðar vera gleðitíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“ Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Helmingur óánægður hefði Hildur valið Miðflokkinn Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig 86 prósent horfðu ekki á úrslit Eurovision Ráðherra vill varamótor Herjólfs tiltækan hérlendis Pólitískur ólgusjór í Bretlandi, hvalveiðar og banvæn hitabylgja „Best að taka menn og sekta duglega“ Briddsarar í toppformi leggjast í víking til Ríga Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Slagsmál tveggja í Kópavogi enduðu á slysadeild Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Aldrei fleiri fengið úthlutaða skólavist Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka BSO-stöðin komin á nýtt heimili Hrafni bjargað af þaki Byko Hlutu Vigdísarverðlaunin fyrir baráttu fyrir jöfnu aðgengi að þungunarrofi Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Fyrstu hvalirnir skotnir og Starmer segir af sér Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Reiðhjólauppboð lögreglu hefst í dag Fundu kannabisplöntur í húsi á Suðurnesjum Sjá meira