Innlent

Allir þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps

Lögreglan gerði mikla leit í Bryggjuhverfinu í nóvember í fyrra.
Lögreglan gerði mikla leit í Bryggjuhverfinu í nóvember í fyrra. mynd/ egill.
Þrír menn hafa verið ákærðir fyrir tilraun til manndráps en þeir er sakaðir um hafa staðið að skotárás við Bryggjuhverfið í Reykjavík í nóvember í fyrra.

Sakborningarnir þrír, karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri, fengu ákærurnar í hendurnar nú fyrir helgi. Árásin sem þeir eru ákærðir fyrir á rætur sínar að rekja til skuldauppgjörs tveggja manna. Fundur sem þeir og nokkrir til viðbótar áttu um málið, við bílastæði í bryggjuhverfinu, endaði hins vegar með því að upp úr sauð og þá mun einn hinna ákærðu hafa tekið upp haglabyssu og skotið í átt að fólksbíl þar sem í sátu tveir menn.

Fyrra skotið hæfði ekki. Mennirnir sem voru í bílnum, sem skotið var á, sluppu ómeiddir og reyndu að komast undan. Árásarmennirnir þrír veittu þeim hins vegar eftirför á öðrum bíl og á hringtorgi skammt frá skutu þeir öðru sinni úr haglabyssunni, út um glugga bílsins sem þeir voru á, og hæfðu bílinn sem þeir voru að elta með þeim afleiðingum að afturrúða brotnaði og miklar skemmdir urðu auk þess sem brot úr hagli hafnaði í baki vinstra aftursætis bílsins.

Mennirnir tveir sem skotið var á komust undan ómeiddir.

Lögreglan handtók svo árásarmennina þrjá og voru þeir úrskurðaðir í gæsluvarðhald.

Þótt einn og sami maðurinn hafi í bæði skiptin skotið af haglabyssunni eru allir þrír í hans hópi ákærðir fyrir tilraun til manndráps.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×