Innlent

Rauði Krossinn biður um vopnahlé í Sýrlandi

Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, fundaði með formanni Alþjóðanefndar Rauða Krossins á síðasta ári.
Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, fundaði með formanni Alþjóðanefndar Rauða Krossins á síðasta ári.
Alþjóðanefnd Rauða Krossins hefur hafið samningaviðræður við stjórnvöld og andspyrnuhópa í Sýrlandi. Samtökin vonast til þess að vopnahléi verði komið á svo að hægt verði að koma neyðargögnum til landsins.

Talsmaður nefndarinnar sagði að Rauði Krossins hafi fundað með leiðtogum andspyrnumanna og yfirvöldum í Sýrlandi. Á fundunum var leitað leiða til að koma mannúðaraðstoð til þeirra svæða sem verst hafa orðið úti í átökunum.

Talið er að um 7.000 manns hafi fallið í Sýrlandi síðan átökin hófust fyrir tæpum 11 mánuðum. Þá hafa um 2.000 meðlimir öryggissveita Sýrlands látið lífið.

Rauði Krossinn hefur komið matvælum og lyfjum til bágstaddra í Sýrlandi síðan átökin hófust. Samtökin hafa þó átt afar erfitt uppdráttar í sumum svæðum landsins.

Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, fundaði með formanni Alþjóðanefndar Rauða Krossins á síðasta ári. Samtökin vonast til þess að nýhafnarsamningaviðræður eigi eftir að bera meiri árangur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×