Jóhanna: Þurfum ekki að kvíða kosningum á næsta ári 28. janúar 2012 12:08 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, á Nordica-Hilton hóteli í morgun. Mynd/Einar
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í morgun að Samfylkingin gæti óhrædd lagt verk sín í dóm kjósenda í næstu kosningum takist ríkisstjórninni að klára stór mál sem nú eru í farvatninu en níu flokksfélagar hennar krefjast þess að landsfundi verði flýtt og að kosið verði að nýju um forystu flokksins. Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar stendur nú yfir á Hilton-Nordica hóteli en í ávarpi sínu við setningu fundarins fór forsætisráðherra yfir árangur ríkisstjórnarinnar í samstarfi Vinstri grænna og Samfylkingarinnar. Þá fór hún yfir að það myndi ráðast á næstu tólf mánuðum hvernig stórum verkefnum ríkisstjórnarinnar myndi ráða af. „Á þessu rúma ári mun það ráðast hvort stjórnarflokkarnir geti staðið við öll stóru orðin um nauðsyn breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu og nýskipan auðlindamála meðal annars með samþykkt rammaáætlunar, tryggu forræði þjóðarinnar á auðlindunum og mótun auðlindasjóðs um arðinn af auðlindum. Á þessu rúma ári ræðst hvort við náum að ljúka samningum okkar við ESB og tryggja að þjóðin hafi síðasta orðið um aðild Íslands að Evrópusambandinu," sagði Jóhanna. „Á næstu tólf til fjórtán árum mun það einfaldlega ráðast hvort fyrsta meirihlutastjórn jafnaðarmanna og félagshyggjufólks, mun skila sínu verki með sóma allt til enda kjörtímabilsins." Forsætisráðherra fór einnig yfir stór verkefni í atvinnumálum. Hún sagði jafnframt að unnið væri að því leynt og ljóst víða í þjóðfélaginu að koma íhaldinu aftur til valda áður en jafnaðarmenn næðu stórum baráttumálum sínum höfn. „Takist okkur að ljúka þeim ætlunarverkum okkar sem ég hef hér lýst , þurfum við í engu að kvíða kosningum á næsta ári. Þær kosningar munu fyrst og síðast snúast um það hvernig sú ríkisstjórn sem nú starfar, og þeir flokkar sem að henni standa, nýttu það sögulega tækifæri sem þeir fengu í síðustu alþingiskosningum - til að reisa íslenskt samfélag úr rústum hugmydnafræði Sjálfstæðisflokksins og koma því kyrfilega á braut jafnaðarstefnunnar." Að lokinni ræðu sinni fékk forsætisráðherra standandi lófaklapp. Á flokssstjórnarfundinum liggur fyrir dagskrá níu félaga í Samfylkingunni sem vilja flýta landsfundi, en Andrés Jónsson, fyrrverandi formaður ungliðahreyfingar flokksins, er einn flutningsmanna tillögunnar. Hann segir að tillagan snúist um að endurnýja flokksforystuna. Hvort tillagan verður samþykkt mun liggja fyrir klukkan hálf sex í dag. Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og á Vísi.is
Mest lesið Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Guðmundi Inga hafnað Innlent Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Innlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Árekstur á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Rannsóknarprófessor og stofnandi Bláa lónsins hlutu Ásuverðlaunin Níu ára fangelsi fyrir að nauðga fatlaðri konu ítrekað Skipulagsstofnun lögð niður Finnst Samfylkingin hafa komið ómaklega fram við sig Tíu ára fangelsi fyrir að verða manni að bana í Kiðjabergi Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Rósa Björk býður sig fram í formann VG Framkvæmdir við Fontana trufluðu hitaveitu á Laugarvatni Hætta að rukka foreldra fyrir leikskólapláss í Ölfusi Árekstur á Sprengisandi Vistmenn á Hjalteyri krefjast bóta sem þeim var lofað Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Guðmundi Inga hafnað „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Ánægjulegt að þriðji hagfræðingurinn sé fundinn „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Fallni prinsinn handtekinn og undirboð á fasteignamarkaði aukast Heitavatnslög gaf sig í Varmahlíðarskóla Miðflokkurinn skarar fram úr í kjördæmi formannsins „Fjölskyldur eru margar í algjörri spennitreyju“ Fleiri telja Bandaríkin andstæðing en bandamann Bein útsending: Heimilisleysi á Íslandi Ráðist á ungan dreng með piparúða „Alltaf hætta á stigmögnun með þá utanríkisstefnu sem Rússland rekur“ Gestafjöldi verður ekki takmarkaður við fimm þúsund Þurfi að útkljá hver er að misskilja hvern Gaut ellefu íslenskum fjárhundum sem er heimsmet „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Litir víkja fyrir nútímanum víðast hvar Sjá meira