Innlent

Íslenskir húðdropar slá í gegn í Frakklandi

Skjáskot úr þættinum. Varan er nú uppseld í París eftir umfjöllunina.
Skjáskot úr þættinum. Varan er nú uppseld í París eftir umfjöllunina. mynd/france 2
Fjallað var íslensku húðdropana frá Sif Cosmetics á frönsku stöðinni France 2 í morgun. Þáttastjórnandinn lofaði vöruna í hástert og sagðist hafa séð greinileg áhrif hjá sér og vinum sínum. Umfjöllunin í morgun olli því að varan seldist strax upp í tískuvöruversluninni Colette í París og vefsíða dreifiaðilans í Frakklandi hrundi vegna álags. Í innslagi stöðvarinnar má sjá viðtal við forstjóra fyrirtækisins og forsetafrúnna, Dorrit Moussaieff.

Hægt er að horfa á umfjöllun France 2 á heimasíðu þeirra. Ýta þarf á Play takkann á myndinni af settinu efst uppi vinstra megin. Umfjöllun um dropana hefst eftir um það bil 1 klst. og 45 mínútúr.

Heimasíða Sif Cosmetics.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×